Ferðalög
12.8.2024 | 07:07
Erpur, já. Hann er mikill sósíalisti að eigin sögn. Væri ekki við hæfi að hann leiði hóp íslenskra vinstrimanna til að skoða dýrðina í Venesúela hjá félaga Maduro? Og hvað með Norður-Kóreu? Litli Kim ku vera mjög gestrisinn.
![]() |
Býður ferðir til landa sem aðrir forðast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Skipulag eða kaos?
11.8.2024 | 20:46
Annað hvort er Ísland með skynsamlegt kerfi í innflytjendamálum, eins og önnur sambærileg lönd, sem það fylgir eða ekki. Að vera með kerfi en fylgja því stundum og stundum ekki gengur ekki. Segir þetta sig ekki sjálft? Innflytjendamál á Íslandi eru eins og fótboltaleikur þar sem leikmenn og áhorfendur eru sífellt að stöðva leikinn til að mótmæla og deila við dómarann. Afraksturinn er endalaus óreiða, óreiða sem er engum til bóta.
![]() |
Reynslan af sérreglum almennt ekki góð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gleðigöngur og stuðningsfólk Palestínu
9.8.2024 | 18:08
Erlendis gerist það nú oftar og oftar að stuðningsfólk Palestínu stöðvar göngur hinseginfólks nema það samþykki kröfur stuðningsfólks Palestínu um aðgerðir gegn Ísrael. Skyldi þetta gerast á Íslandi?
![]() |
Lokað fyrir umferð víðsvegar í miðbænum á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ballaðan um Donald og Kamölu
9.8.2024 | 01:13
Þetta er spennandi og eins og maður var að vona. Trump sagði að hann myndi ekki mæta Kamölu Harris í kappræðum 10. september á ABC nema hún samþykkti að mæta á Fox News 4. september. En hér gaf hann eftir--en er sjálfum sér samkvæmur að því leyti að hann trúir því að það sé hægt að semja um allt (The Art of the Deal)--því hún hefur ekki enn samþykkt að mæta á Fox News. Sennilega samþykkir Kamala að mæta Trump á NBC 25. september. Það ríkir meiri óvissa um hvort hún mæti honum á Fox News 4. september. Það getur líka svo sem vel verið að það verði meira drama í kringum þetta.
Þess má geta að Trump ruglaði saman dögum þegar hann ræddi um þetta opinberlega, eins og fram kemur í frétt á CNN:
I think its very important to have debates, and weve agreed with Fox on a date of September 4. Weve agreed with NBC. Fairly full agreement subject to them on September 10 [röng dagsetning fyrir NBC kappræðurnar]. And weve agreed with ABC on September 25 [röng dagsetning fyrir ABC kappræðurnar], the former president said.
A senior Trump adviser and an ABC source familiar with the matter both said that the correct dates Trump has agreed to with networks are: September 4 with Fox News, September 10 with ABC and September 25 with NBC.
Enginn er fullkominn. Ekki einu sinni Trump.
![]() |
Hefur samþykkt að mæta Harris þrisvar sinnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Að viðhalda skaða
8.8.2024 | 10:21
Einu sinni hjálpaði Rauði krossinn fólki. Núna hjálpar Rauði krossinn fólki að viðhalda lífshættulegri áhættuhegðun og Ríkið spilar með. Opnið augun! Hjálpið fólki að hætta að nota fíkniefni í stað þess að hjálpa því að eyðileggja líf sitt og annarra.
![]() |
Nýtt neyslurými opnað í Borgartúni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rauðir fánar
8.8.2024 | 02:12
Sjáiði rauða flaggið með sem skartar hamri og sigð?
![]() |
Mótmæla óeirðunum í Bretlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ræðuhöld
7.8.2024 | 07:42
Ég byrjaði að hlusta á ræðuna sem Tim Walz hélt, en ég nennti ekki að halda áfram. Hann minnir mig á sjálfumglaðan verkalýðsforingja sem þykist vera "maður fólksins" en er bara klisjukendur kerfiskall. En ég bíð spenntur eftir kappræðum Kamelu Harris og Donalds Trumps. Ég trúi ekki öðru en að þær fari fram. Þá verður nú gaman að lifa.
![]() |
Fyrsti kosningafundur í fullum sal í sveifluríki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sagan
6.8.2024 | 19:02
Í þessari umfjöllun er ekki minnst á að Tim Walz er af mjög mörgum talin hafa brugðist alltof seint við vinstri- og anarkista-óeirðum í Minneapolis-Saint Paul 2020.
![]() |
Hver er Tim Walz? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Langa kalda stríðið
6.8.2024 | 02:33
Ráðstjórnarríkin hrundu, en fólk á Vesturlöndum, sem telur sig berjast fyrir réttlæti og vera "réttu megin sögunnar", er ekkert feimið við að flagga hamri og sigð á meðan það jórtrar á gömlum kommaklisjum. Leiðtogi Rússlands er gamall KGB-maður og skilgetið afkvæmi bolsévismans. Kalda stríðið er að mörgu leyti enn í gangi. Það mætti kannski kalla þetta ástand Langa kalda stríðið.
![]() |
Stórleikarar í nýrri kvikmynd um fundinn í Höfða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Uppfært
5.8.2024 | 10:24
Ný frétt frá Vísi:
Starbucks er ekki að koma til Íslands. Listamaðurinn Oddur Eysteinn Friðriksson, sem kallar sig Odee, stóð fyrir tilkynningu þess efnis að Berjaya Food International hefði tryggt sér rekstrarrétt til þess að opna Starbucks-kaffihús á Íslandi. Hann hefur áður vakið athygli fyrir svipað uppátæki.
Varla lýgur Vísir.
UPPFÆRT:
Samkvæmt nýrri frétt Moggans var það listamaðurinn sem var að skrökva. Ekki lýgur Mogginn
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)