Færsluflokkur: Bloggar
Hannes rannsakar
7.7.2014 | 23:12

Hannes Hólmsteinn Gissurarson sat í bankaráði Seðlabanka Íslands 2001-2009, þannig að það ættu að vera hæg heimatökin að skrifa þessa skýrslu. Sumir myndu kannski kalla þetta hagsmunaárekstra, því hann er jú að hluta til að rannsaka sjálfan sig, en það virðist ekki skipta Fjármálaráðuneyti eða Háskóla Íslands neinu máli. Svo er Hannes stjórnmálafræðingur en ekki hagfræðingur, en það virðist ekki skipta Fjármálaráðuneytið eða Háskóla Íslands neinu máli.
Hvað hefur Hannes sagt hingað til um hrunið? Kíkjum aðeins á það.
Í viðtali við Reykjavik Grapevine 31. ágúst 2009--viðtali sem kallaðist The Architect of the Collapse?--sagði Hannes að íslensku bankarnir hafi orðið of stórir (They grew too big). Síðar skrifar hann í greininni Five Years On, sem birtist í Pressunni 3. október, 2013, að vandamálið hafi ekki verið að íslensku bankarnir hafi verið of stórir heldur að Ísland hafi verið of lítið (The problem was not that the banks were too big; it was that Iceland was too small.)
Hvort er það? Kannski skýrist þetta í nýju skýrslunni.
Hvað höfum við lært af hruninu? spyr Hannes í greininni Five Years On. Svarið er eftirfarandi: Við eigum að afneyta kunningjakapítalisma áranna 2004-2008 og hinum smásálarlega og hefnigjarna sósjalisma sem ríkti 2009-2013 og reyna að snúa aftur til hins heilbrigða markaðs kapítalisma sem ríkti 1991-2004 . . . (That we should both reject the crony capitalism of 20042008 and the petty, vengeful socialism of 20092013, and try to return to the healthy market capitalism of 19912004 . . .)
Reyndar sagði hann í viðtalinu við Reykjavik Grapevine að hrunið væri engum að kenna: Það sem gerðist var að bankarnir stækkuðu of hratt. Og þeir voru bara tryggðir á Íslandi, og það uppgötvaðist að það var ekki nóg í slíkri fjármálakreppu. Það er engum að kenna. (What happened is that the banks grew very rapidly. And they were only reinsured in Iceland, and it was discovered that this wasnt sufficient in such a credit crisis. That is nobodys fault.)
Hvort er það? Er hrunið engum að kenna? Eða er það kunningjakapítalisma og sósjalisma að kenna. Kannski skýrist þetta í nýju skýrslunni.
En hvernig gat það gerst að hinn heilbrigði markaðs kapítalismi varð að hinum ógurlega kunningjakapítalisma" á einni nóttu? Og hver er munurinn? Eru kapítalistar vondir ef þeir eiga kunningja? Og ef við snúum aftur til draumalands hins heilbrigða kapítalisma eiga bankarnir að vera stórir eða smáir? Eða eigum við kannski að stækka Ísland?
Kannski skýrist þetta í nýju 10 milljón króna (auk virðisaukaskatts) skýrslunni.
![]() |
10 milljónir fyrir skýrslu Hannesar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frelsi til að versla
6.7.2014 | 06:42
Ég las þetta viðtal við Eric Clapton, sem Ögmundur vitnar í. En í nýlegu viðtali við Rolling Stone sagði Clapton eftirfarandi: But for me, the struggle is the travel. And the only way you can beat that is by throwing so much money at it that you make a loss."
Sem sagt, Clapton er þreyttur á tónleikaferðalögum og lái honum það hver sem vill. Eina leiðin til að gera slík ferðalög bærilega, samkvæmt honum, er að ferðast svo grand að hann tapar á tónleikaferðalaginu. Það er svolítið fyndið að vinstrimaðurinn Ögmundur vitni í rokkstjörnu sem hefur grætt ógrynni fjár á kapítalismanum.
Að segja að stórar verslunarkeðjur hafi ekki stuðlað að fjölbreytni er ansi undarlegt. Samt viðurkennir Ögmundur að stórar keðjur lækka vöruverð, en er svo í mótsögn við sjálfan sig þegar hann segir: Örfáar samsteypur keppa síðan sín á milli. Sú samkeppnin hefur sína kosti þótt tilhneigining virðist jafnan vera sú að samkeppnisaðilar svokallaðir, lag sig hver að öðrum, sjálfum sér, en síður neytendum til góða." Lægra vöruverð kemur neytendum til góða og þeir sem eru nógu gamlir til að bera vöruúrval saman það sem var til áður en samsteypur komu til sögunnar vita að fjölbreytni hefur aukist verulega. Ef Costco kemur til Íslands bætist við samsteypa, augljóslega, þannig að samkeppnin eykst--nema menn vilji trúa því að allir vondu kapítalistarnir séu saman í samsæri gegn neytendum.
En samt. Það er ágætt að hafa vinstrimenn eins og Ögmund til að viðhalda samkeppni á markaðstorgi hugmyndanna. Maður veit svo sem hvað hann og Clapton eru að fara. Að ferðast um heiminn og sjá bara sömu verslunarkeðjurnar getur verið deprimerandi. Hér er Clapton með Cocaine" eftir J.J. Cale.
![]() |
Þróunin ekki stuðlað að fjölbreytni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 06:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ást og dauði
5.7.2014 | 21:48
Maðurinn á myndinni, maðurinn sem Frazana Parveen giftist hefur viðurkennt að hafa kyrkt fyrrverandi eiginkonu sína fyrir sex árum til að giftast Parveen. Hann slapp við fangelsisvist vegna ákvæða í íslömskum lögum Pakistan. Hann sagði, Ég var ástfanginn af Farzönu og ég drap fyrri eiginkonu mína vegna þessarar ástar." Nú vill þessi maður að ákvæðin sem urðu til þess að hann slapp við fangelsisvist gildi ekki um mennina sem myrtu seinni eiginkonu hans. Ég er feginn að ég er ekki kona í Pakistan.
Heimild: http://www.theguardian.com/world/2014/may/29/pakistan-man-protesting-honour-killing-admits-strangling-first-wife
![]() |
Dæmdir fyrir heiðursmorð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Himinn og jörð
5.7.2014 | 20:06
Ef trú meðlima al-Shabaab er á rökum reist eru meðlimirnir sem létust í sjálfsmorðsárásinni á himnum núna með 72 hreinum meyjum.

![]() |
Fjórir létust í sjálfsmorðsárás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjar tennur
4.7.2014 | 22:15
Þegar ég var í barnaskóla var rekinn mjög áhrifaríkur áróður fyrir tannhirðu. Hreinar tennur skemmast ei! Og sagan um Karíus og Baktus brenndist inn í barnshugann. Ég man að ég vorkenndi þeim samt svolítið þegar þeir fóru beinlínis í vaskinn. Þeir misstu heimilð sitt og nú deyja þeir! hugsaði ég. Ég var svo góður í mér. (Það er reyndar merkilegt hvað vel samsettur áróður og frasar sitja í manni. Þó ég sé ekki kommúnisti þá stend ég mig stundum að því að söngla, Lifi kommúnisminn og hinn rauði her!" Ég hef ekki hugmynd um hvar ég lærði þetta. Einhver veginn líður mér alltaf betur á eftir.)
Fyrir þá sem hafa áhuga á tönnum fólks í fréttum þá er hér umfjöllunum um tennur Davids Bowie.
![]() |
17 best tenntu Íslendingarnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vits er þörf
4.7.2014 | 20:11
Vits er þörf / þeim er víða ratar," stendur í Hávamálum. Í aldanna rás hafa íslenskir karlmenn lært að bíta á jaxlinn og muldra, Aldrei kalt, aldrei hræddur," eða eitthvað álíka, og íslenskar konur læra sennilega eitthvað svipað. En stundum þarf fólk á hjálp að halda og hluti af lífsvisku er að vita þegar svo er og gera eitthvað í málinu. Góðir sérfræðingar geta hjálpað fólki að átta sig á því að það ber ábyrgð á eigin lífi og þarf að læra að standa á eigin fótum. Svona getur harður þjóðlegur vísdómur, eins og t.d. Hann þarf bara að fá sér vinnu" og nútíma sálfræðiþekking tvinnast saman

![]() |
Vill skimun á tilfinningavanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rust Never Sleeps
3.7.2014 | 21:11
Neil Young veit manna best að tíminn er dýrmætur. Ryð sefur aldrei, eða þannig. Í apríl í fyrra var viðtal við Frank Sampedro, gítarleikara Crazy Horse, í Rolling Stone. Þar kom eftirfarandi fram og hann reyndist sannspár að vissu leyti, því hann meyddist á hendi stuttu síðar og Billy Talbot bassaleikari fékk vægt heilablóðfall rúmu ári síðar. En 2013 túrinn var ekki samt ekki síðasti túr Neil Young og Crazy Horse.
Crazy Horse guitarist Frank "Poncho" Sampedro has been playing with Neil Young for 40 years, but he's worried their current world tour might be the last one. "I just think once it stops it's going to be kind of hard to get it rolling again," he says on the phone from his home in Hawaii. "My gut tells me this is really the last tour. I hate saying their ages, but I'm 64 and I'm the baby of the band. I love playing and we're playing as good as we ever did, but at any time something could go down with any one of us."
Young and Crazy Horse have been touring heavily since last August, playing gigs that sometimes stretch beyond two-and-a-half hours. "Our shows are physical," says Poncho. "It takes a lot of energy to play that much. It just seems at some point something is going to break. I already had an operation on my thumb. Neil's wrist bugs him, and he has to tape it when he plays. You can't fool time. You can't count on this happening again in five years."
Það er ekkert fast í hendi. Hér er Neil Young þegar hann var yngri:
![]() |
Neil Young kominn til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Frelsi til að blóta
3.7.2014 | 07:55
Þetta er augljós leið til að klekkja á vinsælum og gagnrýnum bloggurum og fá þá til að nafngreina sig. Hræddur bloggari er góður bloggari." Pútin er náttúrulega gamall KGB maður og hefur engu gleymt. Svona virkar þetta samkvæmt RT fréttamiðlinum:
The new bill introduces a definition of blogger to Russian legislation for the first time. Once it is signed into law popular blogs, defined as those that have 3000 or more visitors per day, will be registered in a special list maintained by the consumer rights agency Rospotrebnadzor. The authors will have to sign the posts with their real name and if it does not happen the state watchdog would require hosting providers and owners of blog platforms to provide the information. Refusal to comply will be punished with fines of between 10,000 and 30,000 rubles ($270- $833) for individuals and between 50,000 and 300,000 rubles ($1400- $8300) for businesses.
Heimild: http://rt.com/politics/154056-russian-bloggers-mass-media/

![]() |
Bannað að blóta í Rússlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
A Name Too Far
3.7.2014 | 00:59
Han Solo gæti kannski kallað sig Harrison Ford, nú eða Hans Óla. Þegar Dominic Kimberley breytti nafni sínu í Han Solo sagði mamma hans: "You've gone a galaxy too far this time". En það hefði getað verið verra. Hann hefði getað kallað sig Jabba the Hutt. Hlutirnir geta alltaf versnað.

![]() |
Han Solo fær ekki vegabréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skyldleiki
1.7.2014 | 22:48
![]() |
Bjarni Ben og Sigmundur Davíð skyldir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)