Stefna Sjálfstæðisflokksins
20.2.2014 | 22:36
Stefna Sjálfstæðisflokksins er skýr:
Sjálfstæðisflokkurinn telur hagsmunum Íslands betur borgið utan Evrópusambandsins en innan. Sjálfstæðisflokkurinn telur að leggja skuli áherslu á nýja fríverslunarsamninga við helstu ríki veraldar og traust samskipti við ESB á grundvelli EES-samningsins eins og gert er í dag. Kjósendur ákveði í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort aðildarviðræðum skuli haldið áfram.
Einhverra hluta vegna virðist flokkurinn ekki vilja framfylgja stefnu sinni, að kjósendur ákveði í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort aðild skuli haldið áfram, á þessu kjörtímabíli. Ef ekki núna, þá hvenær?
Í stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks stendur:
Með aðgerðum sínum hyggst ríkisstjórnin einnig eyða þeirri pólítísku óvissu sem hefur verið of áberandi þáttur í íslensku þjóðlífi á undanförnum árum.
Þetta eru tvær ástæður til þess að efna til þeirrar þjóðaratkvæðagreiðslu sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur lýst yfir opinberlega að sé stefna flokksins.
Við hvað eru menn hræddir? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.