Smá upprifjun
7.3.2014 | 23:03
Nú hafa 46.542 skrifað undir áskorunina um þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er 19.2% kosningabærs fólks á Íslandi. Þarf að hlusta á það?
Til að hjálpa okkur að hugleiða það er hér stutt grein um þjóðaratkvæðagreiðslur og lýðræði. Hana setti ákveðinn maður á heimasíðu sína 24. Janúar 2011. Ég birti greinina í heild sinni svo að enginn geti tekið Ragnar Reykhás á þetta, þ.e.a.s. Ma, ma, ma . . . Þið fjölmiðlamenn takið allt úr samhengi! Ég tek það fram að ég er ekki að kalla mig fjölmiðlamann eða blaðamann. Ég er bara venjulegur bloggari.
Einn höfuðvandi stjórnmálanna í dag er að finna jafnvægi milli fulltrúalýðræðis og beins lýðræðis. Frá hruni hefur verið mikið talað um mikilvægi þess að vægi beins lýðræðis sé aukið í stjórnskipan landsins. Ýmsar leiðir hafa verið nefndar til þess.
Þessi krafa um að fólk fái að hafa eitthvað um mikilvæg mál að segja á milli kosninga er réttmæt krafa og við eigum að gera meira að því að gefa fólki tækifæri til að greiða atkvæði beint um mikilvæg mál.
Icesave málið er ágætt dæmi. Það var á sínum tíma tekið úr þeim farvegi sem hingað til hefur verið hefðbundinn á Íslandi og sett í hendur þjóðarinnar, sem tók mjög mikilvæga og hugrakka ákvörðun. Síðan þá hefur komið skýrar og skýrar í ljós að það var rétt ákvörðun.
Þess vegna tel ég að þjóðin eigi að eiga síðasta atkvæðið í Icesave málinu. Alþingi mun fjalla um og afgreiða málið fyrir sitt leyti og á þeim tíma gefst gott tækifæri til umræðna og til að greina möguleikana sem fyrir liggja. Þjóðin hefur þar gott tækifæri til að kynna sér stöðuna í málinu eins og hún er nú. Kjarninn er að þjóðin fékk málið í hendur og stjórnmálamenn eiga ekki að kippa því til sín aftur.
Sérstaklega á þetta við ef niðurstaða Alþingis er að almenningur taki á sig þessar tugmilljarða skuldbindingar, sem geta hugsanlega í framtíðinni vaxið í hundruð milljarða, t.d. við fall krónunnar. Ef það á að biðja þjóðina um að axla þessa ábyrgð, sem nú virðist loks vera samstaða um að ekki sé lagastoð fyrir, þá hlýtur að vera grunnskilyrði að um það ríki sem mest sátt meðal þjóðarinnar.
Nú má auðvitað gagnrýna þessa afstöðu, jafnvel segja að stjórnmálamenn verði að taka ábyrgð á afgreiðslu þessa máls, að þingmenn megi ekki skýla sér bak við þjóðina eða eitthvað slíkt.
Við búum vissulega við fulltrúalýðræði, en því fylgja bæði kostir og gallar. Winston Churchill orðaði það svo að lýðræðið væri versta hugsanlega stjórnkerfið, fyrir utan öll hin. Og eins og í svo mörgu öðru þurfum við því að finna hinn gullna meðalveg. Það er skynsamur meðalvegur að kjörnir fulltrúar fari daglega með ákvarðanavaldið, en að þjóðin geti með skýrum og ákveðnum hætti farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál þegar þörf krefur. Tekið þau til sín
Icesave málið er þegar komið til þjóðarinnar og það hefur sýnt sig að sú leið varð til góðs. Því finnst mér eðlilegt að málið verði klárað með sama hætti.
Greinin heitir Lýðræðið er versta hugsanlega stjórnkerfið . . ." Hver var höfundurinn? Hann heitir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Allir vilja fá að kjósa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já það yrði þá eins og ICESAVE málið til góðs líka. - Kjósum alveg endilega ESB ruglið út af borðinu - Ætlið þið þá að lofa því að hætta þessari endalausu sundrungu - Eða ætlið þið að halda áfram ? Ef þú segir já við því þá er ég til í þjóðaratkvði STRAX en ef þú ætlar að halda þessari ESB- þráhyggju áfram þá segi ég þvert NEI STRAX!
Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 7.3.2014 kl. 23:26
Ég sé MJÖG mikinn mun á Icesave og þessu máli, í Icesave þá voru stjórnvöld að troða 650-1300 milljarða skuld upp á Íslendinga, það er klárlega mál sem við ættum að fá að segja okkar álit á.
Ef aðlögunarumsóknin að ESB er afturkölluð þá skiptir það engu máli vegna eftirfarandi, við getum alltaf sótt um aftur ef Íslendingar hafa áhuga á að fara þarna inn, það skiptir engu máli hver niðurstaðan á þessari kosningu er hvorki fyrir framtíðina eða nútíðina þar sem núverandi stjórnvöld eru ekki að fara gera neitt í þessu máli, svo í framtíðinni er ekkert mál að sækja um aftur.
Og annar munur
Icesave = lög
afturköllun á esb aðlögunarumsókn = frumvarp.
Halldór (IP-tala skráð) 8.3.2014 kl. 00:02
Takk fyrir athugasemdirnar, Gunnlaugur og Halldór.
Wilhelm Emilsson, 8.3.2014 kl. 20:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.