Talíbanar og lýðræði
15.6.2014 | 04:56
Þrátt fyrir þann terror sem Talibanar beittu var þátttaka í kosningunum u.þ.b. 60%. Geri aðrir betur.
Heimild: ttp://www.aljazeera.com/news/asia/2014/06/afghans-brave-violence-elect-new-president-2014614122014871960.html
Skáru fingur af kjósendum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég get nú ekki séð mikinn mun á afghönskum frambjóðendum og Talibönum.
Pétur D. (IP-tala skráð) 15.6.2014 kl. 18:02
Takk fyrir athugasemdina, Pétur. Þú þyrfir meiri rökstuðning til að sannfæra mig um þetta.
Wilhelm Emilsson, 16.6.2014 kl. 18:09
Karsai forseti Afghanistans, leppur Bandaríkjamanna, sagði fyrir nokkrum árum að hann hygðist innleiða sharia-lög í landinu um leið og NATO afhenti afghönsku fulla stjórn. Þá hugsaði ég: "En sniðugt, bola einum talibönum frá völdum til að koma öðrum talibönum að. Allir tapa nema hergagnaiðnaðurinn í USA."
Pétur D. (IP-tala skráð) 17.6.2014 kl. 02:12
Takk fyrir athugasemdina, Pétur. En Karsai er ekki í framboði núna. Hergagnaiðnaðurinn, í USA og annars staðar, græðir yfirleitt. Og Bandaríkin studdu Talíbana þegar Sovétríkin gerðu innrás í Afganistan. Alþjóðastjórnmál eru engin elsku mamma.
Wilhelm Emilsson, 17.6.2014 kl. 18:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.