þverstæða

"Hófsamir uppreisnarmenn". Er það ekki svolítið eins og "heiðarlegir þjófar" eða "hógværir öfgamenn" ? Smile


mbl.is Vopni hófsama uppreisnarmenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Þetta er nú dálítið fyndið hjá kallinum. Svona hóflega...

Ásgrímur Hartmannsson, 11.9.2014 kl. 09:12

2 identicon

Já þetta er findið bara. Hvernig eru hófsamir vígamenn vs öfgavígamenn? Ættli þeir skjóti bara sirka tveim skotum í hvern andstæðing en hinir alveg heilu magsíni? ;o)

ólafur (IP-tala skráð) 11.9.2014 kl. 17:04

3 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir skelleggar athugasemdir, Ásgrímur og Ólafur!

Wilhelm Emilsson, 11.9.2014 kl. 21:18

4 identicon

Hófsamur uppreisnarmaður í þessu tilviki væri einhver sem byggi ekki yfir nægri þrælslund til að sætta sig endalaust við Assad, en væri um leið ekki nógu siðlaus og brjálaður til að vilja öfgasamtökin ISIL sem stefna að þjóðarmorðum allra "haram" minnihlutahópa (svo sem Yezedi og Drúza), undirokun kristinna og gyðinga og á endanum af heimsyfirráðum. Tugþúsundir manns tilheyra nú ISIL, þar á meðal fjöldi Þjóðverja og Breta. Smölun nýrra múslima nýkominna úr fangelsum þar sem þeir tóku trú er liður í þessum liðsauka sérstaklega frá Bretlandi og það eru áhugaverðar heimildarmyndir um það á netinu. Einnig hafa verið handteknir unglingar víða í Evrópu sem ætluðu að ganga til liðs við Isis, þar á meðal fermingarstúlkur. Óhugguleg þróun, en það er hægt að styðja uppreisn gegn Assad án þess að aðhyllast viðbjóð af þessu tagi. Brátt styttist í fordæmingar rétttrúnaðarfólks á Obama fyrir að bjarga Yezídum og skiptir þá engu að Sýrland er ekkert olíuveldi. Þetta er bara "önnur menning" að þeirra mati, og það á bara að leyfa þessu fólki að drepa hvert annað. Það væri þá bara gott á þau hver þróunin yrði fyrir skort á samúð með öðrum og vilja til hjálpar, sem er fótfesta þessa óhuggnaðar innan Vesturlanda og pólítísk ítök hans hér, upptök og blóðsúthellingar, sem munu eiga sér stað ef viðbjóðurinn er ekki stöðvaður heima fyrir.

The war is on (IP-tala skráð) 12.9.2014 kl. 17:56

5 identicon

Skref tvö til að koma í veg fyrir að óhugnaðurinn endurtaki sig ítrekað þegar ISIL hefur verið þurrkað út og jafnað við jörðu, er stofnun Kúrdistan, eins fljótt og hægt er með hjálp alþjóðasamfélagsins, en til þess þarf að ryðja úr vegi ákveðnum hindrunum eins og illvilja Þjóðverja sem lengi hafa staðið gegn stofnun Kúrdistan og lýst sig mótfallna henni. "Rétttrúaður" Ilamskur mónókúltúr leiðir yfir sig kúgun og hörmungar, og fjölmenning og fjölbreytni er það eina sem fær bjargað Miðausturlöndum og heiminum öllum. Innan Kúrdistan væri æskilegast að Yezídar fengju að stofna eigið ríki og sjálfsstjórnarsvæði kristinna væru mikilvægt skref víða um hinn Islamska heim og víðar til að leiðrétta aldagamla mismunun byggða á trúar- og kynþáttafordómum í garð kristinna sem eru frumbyggjar þessara landa af öðrum meið en aðflutti meirihlutinn.

The war is on (IP-tala skráð) 12.9.2014 kl. 18:03

6 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir athugasemdirnar.

Wilhelm Emilsson, 12.9.2014 kl. 19:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband