Glæpur og athyglisbrestur

„Fiddi, við erum með vitni að því að þú framdir innbrot á Laufásvegi 71 aðfaranótt sunnudags 17. september."

„Ég heiti Friðrik. En, veistu, ég er með svo rosalegan athyglisbrest að ég veit ekkert hvað þú ert að tala um."

„Við erum með vitni . . ."

„Heyrðiru ekki hvað ég sagði? Ertu með athyglisbrest?"

„Ertu að grínast, Friðrik minn?"

„Ég er með svo ofboðslega mikið ADHD að ég er alveg að fara í baklás núna, skiluru? Og, bara þannig að þú vitir það, þessi yfirheyrsluaðferð sem þú beitir reynist mér mjög illa. Þú þarft að fara á endurmenntunarnámskeið, svo þú skiljir hegðun mína betur. Ég sætti mig ekki við svona pyntingar! Hvar er ég staddur? Í GULAG eyjaklasanum, kannski? Guantanamo Bay? Er þetta Nýja Ísland? . . . ÉG ER EKKI DÝR! ÉG ER MANNESKJA! MANNESKJA, SKILURU? . . . SÁLARMORÐINGJARNIR! SÁLARMORÐINGJARNIR!"

„Friðrik."

„Snertu mig ekki!"

„En ég kom ekki við þig."

„HJÁLP!"

„Róa sig."

„YOU'LL NEVER TAKE ME ALIVE, COPPER!" 

Þjófur

 


mbl.is 30% ungra fanga með ADHD
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Fordómar og fáfræði stjórna of miklu.

Þroskaröskun og/eða misþroski var þessi taugaboðefnaröskun kölluð hér áður fyrr. Það var líklega skiljanlegra heldur en þetta nýtískufræðinga-nafn: "ADHD". Fólk skilur almennt ekki að ADHD þýðir í raun taugaboðefna-truflun/röskun í heilanum.

Það sést enginn hjólastóll, hækja né blindrastafur, og þá er þessari röskun afneitað af stórum hluta samfélagsins, með öllum þeim hörmulegu afleiðingum sem fylgja. Ekki bara fyrir einstaklinginn sjálfan í grunnskólaþrælabúðum barna, heldur líka alla aðra í kringum þennan einstakling. Það kemst enginn af í nútímasamfélagi án þess að geta bjargað sér með lestri og nægri einbeitingu til að skilja það sem lesið er. (Bankastjórunum er víst alveg sama um það!)

Það er til háborinnar skammar hversu mikil vanræksla og ofbeldi fær að viðgangast í of mörgum opinberum grunnskólum þessa lands, þegar kemur að þessum misþroska og taugaboðefnaröskun. Sem er svo algjört kvalræði fyrir blessuð óvernduð börnin, vegna fáfræði og fordóma í yfirvalda-fræðasamfélaginu. (Menntamálaráðherra er ekkert að gera, frekar en fyrri ár!)

Börnin fá ekki að vera þau sjálf, allan sinn grunnskólaþrælatíma. Þau eru vanvirt, niðurlægð og hædd af "fullkomna" fólkinu!

Þegar grunnskóla lýkur án vandaðrar greiningar ásamt viðeigandi hjálp, þá útskrifast börn úr grunnskóla? Og án þess að vera læs og skrifandi! Hvernig er þetta hægt?

Eftir það hafa sölumenn svartamarkaðs undirheimanna eignast þessar niðurbrotnu barnssálir, með sölu á efnum sem örva boðefni heilans, og deyfa sáraukann af skilningsleysinu og sálarniðurbrotinu. Eftirlitsmyndavélar eru ekki við grunnskólana, né innan veggja þeirra! Sölumenn dauðans grípa börnin við grunnskólana og gefa þeim fyrstu skammtana, til að venja þau á undirheimaeitrið. Valdaelítan í opinbera kerfinu kennir þeim sviknu börnum svo  um alla glæpi sem framdir eru í þjóðfélaginu, þegar yfirvöldum hentar það.

Svona opinbert þvingunarálag þolir enginn, og síst af öllu börn og óharðnaðir unglingar sem eru að mótast. Þar byrjar vandinn!

Það er ekki til nein opinber barnaverndarnefnd sem tekur á svona "löglegum" glæpum skólayfirvalda! Það er öllum grunnskólum gefið óhindrað ofbeldisleyfi af hinu opinbera, (með samþykki og blessun barnaverndarnefnda), til að brjóta niður sálarlíf og sjálfstraust barna. Afneitun margra grunnskólastjórnenda er algjörlega óábyrg og vítaverð.

Lesblinda barna fellur svo undir sama ofbeldis-vanræksluflokk margra rándýrra opinberra grunnskóla! Olweus-eineltisbullið í grunnskólunum er falskt öryggi.

Valdamestu yfirvöld á öllum vígstöðvum leggja blessun sína yfir opinbera barna/unglingaofbeldið í flestum grunnskólum, og víðar í samfélaginu! Þetta er útgerðarstarfsemi mafíunnar.

Er einhver hissa á að fangelsin og lyfjamafíusvika-kuklara-skottulækna-"sjúkrahúsið" Vogur séu ofsetin? Þegar ekki er pláss fyrir þetta kerfissvikna, grunnskólakúgaða og opinberlega vanrækta fólk annarsstaðar í samfélagi þeirra hátt settu og sjálftöku"fullkomnu", á Íslandinu siðspillta!

Blórabögglar dómsstóla-hvítflibbamafíunnar, er oftar en ekki eina hlutskiptið sem er í boði fyrir þetta varnarlausa fólk, á öllum aldri!

Finnst almenningi þetta ásættanlegt ofbeldi á varnarlausa og svikna í samfélaginu, af hálfu opinbera rándýra kerfisins skattaborgaða?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 23.9.2014 kl. 10:15

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir innlitið, Anna.

Wilhelm Emilsson, 24.9.2014 kl. 05:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband