Regluverk
22.3.2015 | 00:41
Ingibjörg Sólrún segir:
Það er ekkert athugavert við það að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni en Samfylkingin hefur mótað sér ákveðnar reglur um hvernig formannskjör eigi að fara fram og það er mjög mikilvægt að þær reglur séu virtar en ekki reynt að nýta glufu í regluverkinu til að steypa sitjandi formanni.
Er glufa" í regluverkinu, eða er Ingibjörg Sólrún bara ósátt við að einhver bauð sig fram geng sitjandi formanni? Hún getur ekki sýnt fram á að framboðið hafa verið á skjön við núverandi reglur flokksins. Kosningin er annað hvort lögleg eða ólögleg. Enginn hefur sýnt fram að að hún sé ólöglegt.
Til að fá á hreint hvort flokksmenn eru sáttir við núverandi fyrirkomulega væri best að kjósa um það í almennri kosningu. Eru flokksmenn sáttir við að hægt sé að bjóða sig fram gegn formanni á aðalfundi eða ekki? Ef flokkurinn getur ekki haft svona grunnatriði á hreinu er hann ólíklegur til að njóta trausts kjósenda.
Framboðið var misráðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Smmála
Þó þetta virðist sem "glufa" þá er mikil óvirðing við fulltrúa á flokksfundinum að tala um þá einsog einhverja sem hægt er að smala til atkvæðis.Hvernig er þá litið á sauðsvartan almúgan?
Þetta eru fulltrúar Samfylkingarfélaga og það á að bera virðingu fyrir þeirra skoðunum.
Pólitík er fyrst og fremst valdbarátta og maður getur bara vonaða að þeir bestu fljóti ofaná en það er einsog það sem sturtað er niður í klósettinum sumt flýtur upp þó það ætti að hverfa
Grímur (IP-tala skráð) 22.3.2015 kl. 12:55
Takk fyrir að líta við, Grímur.
Wilhelm Emilsson, 25.3.2015 kl. 22:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.