Fordómar

Í greininni stendur:

Sum­ir voru mjög særðir þegar okk­ur var hafnað í fyrra,“ seg­ir Magnús. „For­dóm­ar eru ekki ein­angraðir við vanillu­heim gagn­kyn­hneigðra. Það eru mikl­ir for­dóm­ar gegn BDSM í sam­fé­lagi hinseg­in fólks líka og við ger­um okk­ur grein fyr­ir því að það tek­ur tíma að breyta því.“

Eru það ekki smá fordómar að segja að heimur gagnkynhneigðra sé „vanilluheimur"?


mbl.is Ekkert BDSM í Gleðigöngunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Ég væri líka til í að sjá útskýringu á tengingunni milli gleðigöngunnar, og BDSM samfélagsins.
Sjálf væri ég alveg til í að fólk aflaði sér upplýsinga um BDSM, til að létta aðeins af þeim fordómum sem á því hvíla.
Ég bara sé ekki samasem merkið á milli gleðigöngu baráttufólks fyrir réttindum LGBT fólks og BDSM.
Ekki frekar en að samtök heyrnaskertra mættu í druslugönguna til að vekja athygli á málstað sínum.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 17.7.2015 kl. 21:04

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk kærlega fyrir athugasemdina, Ingibjörg. Vinsældir Fimmtíu grárra skugga sýna að áhugi á, og forvitni um, BDSM er til staðar :) Hlutir sem áður voru algert tabú eru smám saman að færast nær almennri umræðu, og ég held að það sé af hinu góða. 

Wilhelm Emilsson, 17.7.2015 kl. 21:22

3 identicon

Upphafleg grein á gayiceland.is er á ensku http://www.gayiceland.is/2015/bdsm-iceland-not-part-pride-parade/.  Í enskri tungu er oft talað um "vanilla sex" sem hefðbundið kynlíf innan marka þess algenga og þess sem talið er "normal".

https://en.wikipedia.org/wiki/Conventional_sex 

http://www.urbandictionary.com/define.php?term=Vanilla+Sex

Í þýsku er talað um "Blumensex" í þessu samhengi yfir kynlíf sem felur ekki í sér BDSM.

Það vantar kannski gott íslenskt orð á íslensku, en hér er um að ræða lélega þýðingu Mbl.is fremur en formdóma.  Betra hefði verið að þýða þetta: "Fordómar eru ekki einangraðir við gagnkynhneigt fólk sem stundar hefðbundið kynlíf"  Fólk sem er fyrir BDSM getur verið gagnkynheigt, samkynhneigt, tvíkynheigt, pansexual eða asexual og eflaust eitthvað fleira.  
  

Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 18.7.2015 kl. 17:14

4 identicon

Bull,hræsni og heimskasta heimska.

Fordómar eru einfaldlega stjórntæki, ævagamalt stjórntæki.

Leibbi Leibbs (IP-tala skráð) 18.7.2015 kl. 23:30

5 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir að líta við, Geir og Leibbi.

Wilhelm Emilsson, 20.7.2015 kl. 19:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband