Íran

Í greininni stendur:

Hossein Amir-Abdolla­hi­an, ut­an­rík­is­ráðherra Írans, kallaði einnig eft­ir því að Rafha-landa­mær­in við Egypta­land yrðu opnuð taf­ar­laust til þess að hægt væri að senda mannúðaraðstoð til Gasa.

Amir-Abdolla­hi­an hrósaði Guter­res fyr­ir að virkja heim­ild 99. grein­ar stofn­sátt­mála stofn­un­ar­inn­ar.

Íran styrkir Hamas og önnur hryðjuverkasamtök, t.d. Hezbollah. Ef stjórnvöld í Íran hefðu snefil að samúð með almennum borgurum í Gaza myndu þau hætta að styðja Hamas en stjórnvöld í Íran hafa ekki einu sinni snefil af samúð með almennum borgurum í Íran.


mbl.is Bandaríkjamenn beittu neitunarvaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Ef Bandaríkin hefðu snefil af samúð með almennum borgurum væru þeir ekki að styðja hryðjuverkaríkið Ísrael og hefðu stutt þessa ályktun í Öryggisráði Sameinujðu þjóðanna. Þegar átök eru milli hernámveldis og fórnarlamba hernámsins þá er það hernámsveldið sem ber sökina á því. 

Það mun ekkert laga ástandið að eyða Hamas. Meðan hernámið er enn til staðar mun bara koma upp önnur andspyrnuhreyfing. Hamas er afleiðingin. Það er hernámikð og ólöglegar og með öllu óréttlætanlegar landránsbyggðir Ísraela á herteknu svæðunum sem er orsökin. Það er ekki hægt aðlaga ástand með því að ráðasst að einkennum þess heldur þarf að eyða orsökinni það er hernáminu.

Sigurður M Grétarsson, 9.12.2023 kl. 15:49

2 identicon

Sælir; Wihelm og Sigurður M Grétarsson, sem aðrir gestir Wilhelm´s !

Því miður Wilhelm minn; get jeg ekki annað, en tekið undir með Sigurði - þó ekki væri

nema í ljósi sögunnar (Balfour yfirlýsingin: sem og stofnun Ísraels 1948).

Sjálfum; þætti mjer ekkert lakara, að skapleg niðurstaða gæti fengizt með því, að

Gyðingarnir (Ísraelsmenn) fengju einhverja eyðibyggðar spildu hjá Síberíu- Rússum

norður við Íshaf í framtíðinni: spildu, sem frumbyggjar Síberíu gætu sjeð af, í hinu

víðáttumikla dreifbýli þeirra, þar eystra.

Filistearnir; (Palestínumenn) hafa verið sniðgengnir á sínum heimaslóðum, allt frá

stofnun Ísraels, og mátt sæta því að vera III. og IIII. fjórða flokks borgarar, í sínu

eigin heimalandi, allar götur síðan.

Er ekki mál til komið; að einhverjar skynsamlegar lausnir fari að finnast til friðar

í Mið- Austurlöndum, Wilhelm ?

Með beztu kveðjum; sem oftar, af Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 9.12.2023 kl. 20:41

3 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Fyrst Samfylkingarmaðurinn og Falangistinn eru sammála þá hlýt ég að hafa rangt fyrir mér, ekki satt? cry

Gleðileg jól!

Wilhelm Emilsson, 9.12.2023 kl. 23:12

4 identicon

Sælir; á ný !

Wilhelm !

Framsetning okkar Sigurðar M; til þessarra mála byggist á raunsæi, með

tilliti til hinna sögulegu staðreynda - og engu öðru, síðuhafi góður.

Með sömu kveðjum; sem þeim fyrri:: vitaskuld /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 10.12.2023 kl. 13:00

5 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Sæll Óskar:

Ég leyfi mér að umorða Pontíus Pílatus: "Hvað er raunsæi?" 

Wilhelm Emilsson, 11.12.2023 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband