Réttarkerfi fáránleikans

Að þessi fjöldamorðingi geti farið í mál við norska ríkið er auðvitað fáranlegt. Fórnarlömb hans hafa engan rétt til neins, því hann tók frá þeim það dýrmætasta sem þau áttu, lífið. Dómskerfið, sem á að snúast um réttlæti, gerir honum kleift að halda áfram illvirkjum sínum. Þetta er ekki síðmenning. Þetta er heimska, veiklyndi, og viðbjóður. 

Og Breivik er að sjálfsögðu búinn af áfrýja dómnum til áfrýjunardómstóls.


mbl.is Breivik tapaði máli gegn ríkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Mér finnst eitthvað jákvætt við þetta.  Að menn geti bara endalaust leitað réttar.  Það er jú tilgangurinn með "réttarríki."

Á hinn bóginn, ef fólk vill síður verða skotið, ætti að að íhuga að skjóta á móti.  Það er meira svona "náttúruréttur."

En fólk er frekar náttúrulaust.

Ásgrímur Hartmannsson, 16.2.2024 kl. 17:37

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir athugasemdina, Ásgrímur. Þú ert ekki einn um það sjá að sjá það jákvæða í því að fólk geti "leitað réttar síns" út í hið óendanlega. Mín skoðun er sú að á ákveðnum tímapunkti snúist slíkt "réttarkerfi" upp í andhverfu sína, því réttur fórnarlamba og samfélagsins sem heildar verður undir.

Ég skil líka það sem þú segir um sjálfsvörn, en ég verð að játa það að þótt mér finnist spennandi að lesa um villta vestrið og sambærileg samfélög þá vil ég ekki búa við slíkar aðstæður.

Wilhelm Emilsson, 16.2.2024 kl. 18:51

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Ekki amast út í villta vestrið, tímabilið fyrir 1912 var það friðsamlegasta fyrir almenna borgara í sögu Bandaríkjanna.  Það eru til áreiðanleg gö-gn frá 1885.  Merkilegt fyrirbæri, sem hægt er að skoða.

Þú veist að þegar þú getur nafngreint megnið af öllum glæpamönnunum, núna 120 árum siðar, að þá voru þeir nú ansi fáir.

Það var þessi "samfélagslega ábyrgð" þá. Fólk veit ekki hvað sá frasi þýðir.  Reyndar sýnist mér að fólk viti almennt ekki hvað snýr upp og hvað niður.

Ásgrímur Hartmannsson, 16.2.2024 kl. 20:53

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Já, þú meinar að þetta hafi bara verið misskilningur og að Vilta vestrið hafi bara verið Milda vestrið :0) Liggja þessi gögn frá 1885 á lausu?

Wilhelm Emilsson, 17.2.2024 kl. 00:07

5 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

1 mínúta á google*:

https://www.russellwebster.com/murder-through-the-ages-and-across-the-world/

Q: "The Home Office recently (16 July 2015) published some very interesting data sets – including summaries of recorded crime in England and Wales from 1898 to 2014/15. I thought this would be interesting to peruse, starting with a look at the murder rate over the last century and a bit."


Mynd: https://www.russellwebster.com/wp-content/uploads/2015/07/murder-rate.jpg

Önnur mynd, gögn frá USA: https://external-content.duckduckgo.com/iu/?u=http%3A%2F%2Fcdn0.thetruthaboutguns.com%2Fwp-content%2Fuploads%2F2013%2F12%2FUS-MURDER85101-900x777.jpg&f=1&nofb=1&ipt=908326f17f6292b784ea6abdeb1f07ef1a6a71fc05ff729f0d8af32785345d86&ipo=images

Gögnin eru öll til, fyrirlyggjandi ef þ´+u nennir að leita.  FBI hefur þetta allt sundurliðað eftur fylki, borg, kynþætti og hverskyns vopn var notað, ef eitthvað.

Kaninn er mjög góður í að halda utanum upplýsingar.

*Duckduckgo eða Brave eru betri.

Ásgrímur Hartmannsson, 17.2.2024 kl. 14:52

6 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk, Ásgrímur. Ég tékka á þessu.

Wilhelm Emilsson, 17.2.2024 kl. 22:16

7 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Við vorum ekki að tala um England eða Wales, þannig að málið snýst ekki um þau lönd.

Sýna upplýsingarnar frá Bandaríkjunum hve mörg morð voru framin á tímabilinu eða prósentu morða miðað við höfðatölu?

Wilhelm Emilsson, 17.2.2024 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband