Kamala Harris

Kamala Harris minnir mig nú einna helst á fulla frænku. Ruglið sem dettur uppúr henni jafnast stundum á við ruglið sem vellur upp úr Trump. 


mbl.is „Kamala er frekjudós“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fjölmiðla maskína demokrata er öflug.

Þætti gaman að vita hvort hún hafi virkilega gróðursett tré fyrir ísrael þegar hún var ung að árum, eða hvort það sé ekki bara haugalygi.

Kannski mun hún gera það sama og Ivanka Trump og fara að leiði rabbíans Menachem Mendel Schneerson sáluga rétt fyrir kosningar?

En rabbí Schneerson hélt því fram að sonur guðs myndi ekki fæðast fyrr en gyðingar væru búnir að endurheimta allt landssvæði hins mikla Ísraels til forna.

Schneerson trúði því mjög að Neðaní væri maðurinn til að framfylgja þeirri sýn með miklum fögnuði íslenskra evanglista.

L (IP-tala skráð) 26.7.2024 kl. 02:43

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Sæll, L!

Áróðursmaskínur bæði demókrata og repúblikana eru öflugar, en ég held að það sé ekki ofsögum sagt að svokölluð prógressív sjónarmið hafi meira vægi í meginstraumsfjölmiðlum.

Stjórnmálamenn segja ekki alltaf sannleikann. Það vitum við, en þeir ljúga ekki um allt. Kamala Harris segist hafa safnað peningum til að planta trjám í Ísrael. Ég held að hún hafi ekki sagst hafa plantað þeim sjálf. Ég held að Ísraelar taki þessu ekki sem einhvern rosa stuðning við landið. Ég seldi happadrættismiða fyrir KFUM þegar ég var krakki, en tel mig ekki mikinn stuðningsmann þeirra samtaka í dag. 

Þegar kemur að trúarbrögðum, hvort sem það er Gyðingdómur, Kristni, Íslam eða Marxismi, þá er best að trúa ekki öllu sem þar kemur fram :)

Wilhelm Emilsson, 26.7.2024 kl. 23:09

3 identicon

Ágætt að vita að þú gerir ekki greinarmun á trúarbrögðum og sértrúarbrögðum..

Rebbe Schneerson hefur/hafði gagnrýnis raddir innan Júdeu trúarbragða, vegna Krists áráttu sinnar.

Samrýnist kenningum bandarískra sem íslenskum Evanglistum.

L (IP-tala skráð) 27.7.2024 kl. 00:45

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Það eru margir að bíða eftir frelsara en biðin er löng og ströng :-)

Wilhelm Emilsson, 27.7.2024 kl. 01:53

5 identicon

Frá fljóti Nílar að fljóti Efrats.

Rétt, það trkur tíma.

L (IP-tala skráð) 28.7.2024 kl. 00:42

6 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Ég þurfti að fletta þessu upp, L. Er ekki nægilega vel að mér í spádómum Bíblíunnar ;) Menn semja sögur um Guð og að hann sé alltaf að lofa þeim einhverju, yfirleitt landssvæði.

Wilhelm Emilsson, 29.7.2024 kl. 03:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband