Ballaðan um Donald og Kamölu

Þetta er spennandi og eins og maður var að vona. Trump sagði að hann myndi ekki mæta Kamölu Harris í kappræðum 10. september á ABC nema hún samþykkti að mæta á Fox News 4. september. En hér gaf hann eftir--en er sjálfum sér samkvæmur að því leyti að hann trúir því að það sé hægt að semja um allt (The Art of the Deal)--því hún hefur ekki enn samþykkt að mæta á Fox News. Sennilega samþykkir Kamala að mæta Trump á NBC 25. september. Það ríkir meiri óvissa um hvort hún mæti honum á Fox News 4. september. Það getur líka svo sem vel verið að það verði meira drama í kringum þetta.

Þess má geta að Trump ruglaði saman dögum þegar hann ræddi um þetta opinberlega, eins og fram kemur í frétt á CNN:

“I think it’s very important to have debates, and we’ve agreed with Fox on a date of September 4. We’ve agreed with NBC. Fairly full agreement subject to them on September 10 [röng dagsetning fyrir NBC kappræðurnar]. And we’ve agreed with ABC on September 25 [röng dagsetning fyrir ABC kappræðurnar],” the former president said.

A senior Trump adviser and an ABC source familiar with the matter both said that the correct dates Trump has agreed to with networks are: September 4 with Fox News, September 10 with ABC and September 25 with NBC.

Enginn er fullkominn. Ekki einu sinni Trump. wink

 


mbl.is Hefur samþykkt að mæta Harris þrisvar sinnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Virðist ekki vera eins auðvelt að innprenta skoðanir í hinn almenna ódópaða almenning.

kannski að fjōlmiðlafólk fái kennslu í að innprenta þennan hóp fólks?

það getur varla versnað?

L (IP-tala skráð) 10.8.2024 kl. 00:55

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Maður getur spurt sig hve margir eru í raun ódópaðir. Á Íslandi eru 160 af hverjum 1000 á þynglyndislyfjum. Svo drekkur fólk auðvitað og neytir fíkniefna. Þar fyrir utan eru allir á hugmyndafræðilegu dópi auðvitað. 

Wilhelm Emilsson, 10.8.2024 kl. 19:47

3 identicon

Og þar með fáir allsgáðir eða hvað?

L (IP-tala skráð) 15.8.2024 kl. 21:15

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Við erum öll undir áhrifum :)

Wilhelm Emilsson, 16.8.2024 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband