Ónýtt samband
26.5.2025 | 15:27
Í frétt á RÚV.is stendur:
Þessi fundur sem við vorum á í dag, ég myndi segja að aðdragandi hans og vinnubrögðin á fundinum hafi að mínu mati verið mjög harkaleg og það er ýmislegt sem ég hef séð í vinnubrögðum meðlima þessarar nýju framkvæmdastjórnar sem ég tel ekki að hjálpi okkur áfram í baráttunni fyrir sósíalisma svo ég sé alveg hreinskilin með það, sagði Sanna á laugardag.
Mér finnst að eftir þessi orð geti Sanna ekki með góðri samvisku unnið fyrir flokkinn og að nýkjörin stjórn hans geti ekki unnið með henni. Þetta samband er ónýtt.
![]() |
Segir sig frá öllum trúnaðarstörfum innan flokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Detta út í næstu kosningum.
B. Gudjonsson (IP-tala skráð) 26.5.2025 kl. 18:03
Takk fyrir athugasemdina, B. Já, það er ekki ólíklegt. Ef ég skil málið rétt þá eru nýju leiðtogarnir enn lengri til vinstri en þeir gömlu, sem er ekki líklegt til almennra vinsælda.
Wilhelm Emilsson, 26.5.2025 kl. 20:21
"enn lengra"
Wilhelm Emilsson, 26.5.2025 kl. 20:21
Varla verður lengra komist til vinstri undir merkjum sósílaisma og kannski verður því fyrsta verk nýrrar forystu að breyta nafni flokksins í Kommúnistaflokk Íslands?
Guðmundur Ásgeirsson, 26.5.2025 kl. 20:43
Takk fyrir athugasemdina, Guðmundur. Það væri sennilega heiðarlegra miðað við hugmyndafræði þeirra afla sem núna stjórna flokknum.
Wilhelm Emilsson, 27.5.2025 kl. 16:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.