Bloggfærslur mánaðarins, desember 2014

Hreinsanir

Hreinsanir eru ær og kýr kommúnista. Þessi náungi er eflaust skúrkur, en sennilega ekkert verri en þeir sem sjá sér hag í því að losa sig við hann.

Ekki vissi ég að framhjáhald væri ólöglegt í Kína. Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.

zhou_yongkang


mbl.is Fyrrum yfirmaður öryggismála í Kína handtekinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært

Þetta er dásamlegt og frábært hjá Brynjari að leyfa RÚV að sýna myndskeiðið.


mbl.is Brynjar fær hláturskast í viðtali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sögulegt afrek

Þótt Bandaríkjamenn og Íranir vinni ekki saman, þá hefur Ríki íslams tekist að gefa þeim sameiginlegt markmið, að rústa sér. Það verður að teljast nokkuð mikið afrek.

USA Íran


mbl.is Íran gerir loftárásir á Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðminjar

Mér líst vel á þetta. Gömul falleg hús með sögulegt gildi á að friðlýsa til að koma í veg fyrir að þau verði rifin og nútíma kumbaldar sé reistir í stað þeirra. Svo legg ég til að Framsóknarflokkurinn verði friðaður vegna sögulegs gildis hans áður en hann hverfur algerlega.


mbl.is Friðlýsti salinn í Nasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dauðaþrá?

Fyrst hækkun matarskatts og núna á að rukka Íslendinga fyrir að horfa á landið sitt. Manni finnst stundum eins og að þessi ríkisstjórn sé komin með netta dauðaþrá.

Sigmundur Davíð og Bjarni 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Ekki bannað að fara í berjamó
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er nefnilega það

Það er nefnilega það. Lægsta fylgi Framsóknarflokksins í alþingiskosningum frá upphafi var 11.7%. Það var 2007. Núna er flokkurinn, undir stjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem sagt kominn niður fyrir þetta sögulega lágmark, samkvæmt nýjustu skoðanakönnun. Jónas frá Hriflu yrði ekki mjög hrifinn. Eða eins og Steingrímur Hermannsson hefði sagt: „Þetta er ekki nógu gott. Ég verð að segja það."

Sigmundur Davíð


mbl.is 36% styðja ríkisstjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veðrið tjáir sig

Íslenskt veður mótmælir nísku Norðmanna og minnir ráðamenn og þjóðina á að það hefði átt að afþakka jólatréð eftir að Norðmenn hættu við að hætta við að gefa Íslendingum tréð.


mbl.is Jólatréð á Austurvelli skemmdist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband