Bloggfærslur mánaðarins, mars 2014
Skynsamleg umræða
9.3.2014 | 21:36
Hér er ágætis spjall við Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, á Harmageddon.
http://visir.is/section/MEDIA98&fileid=CLP25209
![]() |
Ræða ESB-málið á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Allir sáttir
9.3.2014 | 19:04
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Smá upprifjun
7.3.2014 | 23:03
Nú hafa 46.542 skrifað undir áskorunina um þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er 19.2% kosningabærs fólks á Íslandi. Þarf að hlusta á það?
Til að hjálpa okkur að hugleiða það er hér stutt grein um þjóðaratkvæðagreiðslur og lýðræði. Hana setti ákveðinn maður á heimasíðu sína 24. Janúar 2011. Ég birti greinina í heild sinni svo að enginn geti tekið Ragnar Reykhás á þetta, þ.e.a.s. Ma, ma, ma . . . Þið fjölmiðlamenn takið allt úr samhengi! Ég tek það fram að ég er ekki að kalla mig fjölmiðlamann eða blaðamann. Ég er bara venjulegur bloggari.
Einn höfuðvandi stjórnmálanna í dag er að finna jafnvægi milli fulltrúalýðræðis og beins lýðræðis. Frá hruni hefur verið mikið talað um mikilvægi þess að vægi beins lýðræðis sé aukið í stjórnskipan landsins. Ýmsar leiðir hafa verið nefndar til þess.
Þessi krafa um að fólk fái að hafa eitthvað um mikilvæg mál að segja á milli kosninga er réttmæt krafa og við eigum að gera meira að því að gefa fólki tækifæri til að greiða atkvæði beint um mikilvæg mál.
Icesave málið er ágætt dæmi. Það var á sínum tíma tekið úr þeim farvegi sem hingað til hefur verið hefðbundinn á Íslandi og sett í hendur þjóðarinnar, sem tók mjög mikilvæga og hugrakka ákvörðun. Síðan þá hefur komið skýrar og skýrar í ljós að það var rétt ákvörðun.
Þess vegna tel ég að þjóðin eigi að eiga síðasta atkvæðið í Icesave málinu. Alþingi mun fjalla um og afgreiða málið fyrir sitt leyti og á þeim tíma gefst gott tækifæri til umræðna og til að greina möguleikana sem fyrir liggja. Þjóðin hefur þar gott tækifæri til að kynna sér stöðuna í málinu eins og hún er nú. Kjarninn er að þjóðin fékk málið í hendur og stjórnmálamenn eiga ekki að kippa því til sín aftur.
Sérstaklega á þetta við ef niðurstaða Alþingis er að almenningur taki á sig þessar tugmilljarða skuldbindingar, sem geta hugsanlega í framtíðinni vaxið í hundruð milljarða, t.d. við fall krónunnar. Ef það á að biðja þjóðina um að axla þessa ábyrgð, sem nú virðist loks vera samstaða um að ekki sé lagastoð fyrir, þá hlýtur að vera grunnskilyrði að um það ríki sem mest sátt meðal þjóðarinnar.
Nú má auðvitað gagnrýna þessa afstöðu, jafnvel segja að stjórnmálamenn verði að taka ábyrgð á afgreiðslu þessa máls, að þingmenn megi ekki skýla sér bak við þjóðina eða eitthvað slíkt.
Við búum vissulega við fulltrúalýðræði, en því fylgja bæði kostir og gallar. Winston Churchill orðaði það svo að lýðræðið væri versta hugsanlega stjórnkerfið, fyrir utan öll hin. Og eins og í svo mörgu öðru þurfum við því að finna hinn gullna meðalveg. Það er skynsamur meðalvegur að kjörnir fulltrúar fari daglega með ákvarðanavaldið, en að þjóðin geti með skýrum og ákveðnum hætti farið fram á þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál þegar þörf krefur. Tekið þau til sín
Icesave málið er þegar komið til þjóðarinnar og það hefur sýnt sig að sú leið varð til góðs. Því finnst mér eðlilegt að málið verði klárað með sama hætti.
Greinin heitir Lýðræðið er versta hugsanlega stjórnkerfið . . ." Hver var höfundurinn? Hann heitir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
![]() |
Allir vilja fá að kjósa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sigmundur Davíð og frú í Kanada
7.3.2014 | 18:09
Í Vísi er grein um Sigmund Davíð í Kanada. Þar stendur:
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra var sannkallað lukkudýr íshokkíliðsins Edmonton Oilers í Kanada í gærkvöldi þegar liðið lagði New York Islanders 3-2.
Sigmundur Davíð sótti leikinn ásamt konu sinni í vinnuferð í Edmonton í Kanada, en Icelandair flaug jómfrúarflug sitt til borgarinnar í fyrradag.Lið Edmonton Oilers var 0-2 undir á heimavelli lengi framan af en í þriðja og síðasta leikhluta dró til tíðinda þegar Sigmundur Davíð og kona hans voru kynnt leikmönnum og áhorfendum á leiknum á stórum sjónvarpsskjáum á vellinum.
Mikil fagnaðarlæti brutust út og stuttu seinna minnkaði heimaliðið muninn. Oilers jafnaði síðan leikinn þegar lítið var eftir og sigraði að lokum í uppbótartíma, 3-2.
Kanadamenn á leiknum voru á einu máli um að kynningin á íslenska forsætisráðherranum hefði gert gæfumuninn.
Sigmundur Davíð var ekki sá eini sem fékk sérstaka kynningu á sjónvarpsskjáum áhorfenda í Edmonton heldur var íshokkístjarnan Wayne Gretzky einnig viðstaddur.
Gretzky er þjóðhetja í Kanada en hann spilaði 20 tímabil í NHL deildinni fyrir fjögur lið og leiddi kanadíska landsliðið til sigurs á heimsmeistaramóti þrisvar sinnum.
Merkilegt nokk er ekki minnst á Sigmund Davíð í lýsingu Edmonton Journal á leiknum.
Heimild: http://www.edmontonjournal.com/sports/hockey/edmonton-oilers/index.html
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sigmundur Davíð í Kanada
7.3.2014 | 02:42
Hér er hressileg frétt um forsætisráðherrann, sem lenti fyrir stuttu í Edmonton, Kanada.
![]() |
Brá sér í gervi Sigmundar Davíðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Zoolander
6.3.2014 | 22:34

![]() |
Kjötstykki eða fyrirsætur? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Útspil Obama
2.3.2014 | 04:20
Obama bauð upp á þennan kost:
if Russia has concerns about the treatment of ethnic Russian and minority populations in Ukraine, the appropriate way to address them is peacefully through direct engagement with the government of Ukraine and through the dispatch of international observers under the auspices of the United Nations Security Council or the Organization for Security and Cooperation in Europe.
Þetta hljómar skynsamlega. En skynsemin ræður ekki alltaf ferðinni í alþjóðastjórnmálum. Það er vel þekkt að aggressívir þjóðernishyggjutaktar og stríð eykur oftast vinsældir þjóðarleiðtoga og þetta veit Putin auðvitað.
![]() |
Pútín segist vera í fullum rétti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)