Bloggfærslur mánaðarins, mars 2023

Kommúnískt siðferði

Maður ætti að vera orðinn vanur þessu en það er ennþá samt svolítið skrítin tilfinning að hlusta á siðapredikanir kínverskra kommúnista. 


mbl.is Pútín og Xi ræða áætlun til að enda stríðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Raddir í fjósi

Fyrir kúamessuna hafði presturinn áhyggjur af því að vera baulaður niður af kúnum, samkvæmt Vísi, en þetta virðist allt hafa farið vel að lokum. Kannski voru þetta heilagar kýr.


mbl.is Bauluðu á prestinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning

Nú er spurning hvort lesendur Morgunblaðsins fái pravdíska fréttaskýringu um þessa heimsókn frá hinum pútínska armi Moggabloggsins.


mbl.is „Glæpamaðurinn snýr alltaf aftur á vettvang“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurkoma appelsínugula mannsins með dauðu augun

Og Trump notaði að sjálfsögðu UPPHAFSSTAFI og upphrópunarmerki! 


mbl.is Trump snúinn aftur á Facebook
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bítlarnir . . . og Wings

Það má rífast um ýmislegt en þegar kemur að tónlist er það erfitt að vera ósammála þessari niðurstöðu. Verð samt að koma að ódauðlegri setningu úr Alan Partridge atriði:

Who is Wings?

They are only the band the Beatles could have been.


mbl.is Merkasta hljómsveit sögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samræður um mannúðarmál

Í fréttinni stendur:

Í til­kynn­ingu frá yf­ir­völd­um í Kreml kem­ur fram að leiðtog­arn­ir muni ræða áfram­hald­andi sam­starf land­anna á fund­in­um og muni sam­ræðurn­ar snerta á ýmsu þar á meðal stjórn­mála-, viðskipta-, efna­hags- og mannúðar­mál­um.

Maður þarf eiginlega að vera absúrd leikritaskáld til að geta ímyndað sér hvernig samræður Pútins og Assads um mannúðarmál hljómi.


mbl.is Pútín og Assad funda um samstarf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mótmælendur og athygli

Mjög gott dæmi um það hvernig athyglissýki og aktívisimi fara oft saman. Athyglissjúklingar allra landa sameinist! 


mbl.is Sagði berbrjósta mótmælanda að drulla sér af sviðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menningarstuldur

Klæðum alla íslenska leikara sem taka þátt í sýningunni í lopapeysur. Allt annað er menningarstuldur, ekki satt?


mbl.is Gripu til málamiðlana á annarri sýningu óperunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áætlanir og áróður

Já, er ekki sátt og samlyndi yfirleitt besta leiðin? "Hjólreiðar eru hamingjusamasti ferðamátinn," segir í Hjólreiðaáætlun Reykjavíkur 2021-2025. Þetta er náttúrulega bara áróður. Það getur verið gaman að hjóla auðvitað en að reyna að þröngva þessum ferðamáta upp á fólk leynt og ljóst, sérstaklega eins og veðráttan er á landinu, er ávísun á ósætti og sundrungu.


mbl.is „Við mótmælum þessu harðlega“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir græða

Allir græða! Húrra! Svo fellur þetta í gleymskunnar dá á morgun og næsta drama tekur við. 


mbl.is Umfjöllunin hefði kostað 150 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband