Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2024

Rauðir fánar

Sjáiði rauða flaggið með sem skartar hamri og sigð? 


mbl.is Mótmæla óeirðunum í Bretlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræðuhöld

Ég byrjaði að hlusta á ræðuna sem Tim Walz hélt, en ég nennti ekki að halda áfram. Hann minnir mig á sjálfumglaðan verkalýðsforingja sem þykist vera "maður fólksins" en er bara klisjukendur kerfiskall. En ég bíð spenntur eftir kappræðum Kamelu Harris og Donalds Trumps. Ég trúi ekki öðru en að þær fari fram. Þá verður nú gaman að lifa.


mbl.is Fyrsti kosningafundur í fullum sal í sveifluríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sagan

Í þessari umfjöllun er ekki minnst á að Tim Walz er af mjög mörgum talin hafa brugðist alltof seint við vinstri- og anarkista-óeirðum í Minneapolis-Saint Paul 2020. 


mbl.is Hver er Tim Walz?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langa kalda stríðið

Ráðstjórnarríkin hrundu, en fólk á Vesturlöndum, sem telur sig berjast fyrir réttlæti og vera "réttu megin sögunnar", er ekkert feimið við að flagga hamri og sigð á meðan það jórtrar á gömlum kommaklisjum. Leiðtogi Rússlands er gamall KGB-maður og skilgetið afkvæmi bolsévismans. Kalda stríðið er að mörgu leyti enn í gangi. Það mætti kannski kalla þetta ástand Langa kalda stríðið. 


mbl.is Stórleikarar í nýrri kvikmynd um fundinn í Höfða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppfært

Ný frétt frá Vísi:

Starbucks er ekki að koma til Íslands. Listamaðurinn Oddur Eysteinn Friðriksson, sem kallar sig Odee, stóð fyrir tilkynningu þess efnis að Berjaya Food International hefði tryggt sér rekstrarrétt til þess að opna Starbucks-kaffihús á Íslandi. Hann hefur áður vakið athygli fyrir svipað uppátæki.

Varla lýgur Vísir.


UPPFÆRT:

Samkvæmt nýrri frétt Moggans var það listamaðurinn sem var að skrökva. Ekki lýgur Mogginn smile


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skin og skúrir

Þetta er Framsóknarlegasta veðurspá sem ég hef heyrt. Framsókn fyrir framtíðina. Hvað sem það nú þýðir. smile


mbl.is „Ekkert afgerandi bongó í kortunum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rusl

Sumir eru sóðar, en grunnvandamálið er að Borgin tæmir ekki gámana nægilega oft. Samviskusamir, umhverfisvænir borgarar þurfa að ferðast á milli gámasstaða í örvæntingarfullri von um að geta hent rusli. 


mbl.is Gagnrýnir sóðaskap stúdenta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegatollar? Nei takk!

Ég segi nú bara eins og Margaret Thatcher, "No! No! No!" Það er ein af grunnskyldum ríkisins að halda uppi þokkalegu vegakerfi, sérstaklega í landi þar sem fólk er skattpínt eins harklega og á Íslandi. Vegatollar eru hrein og klár fjárkúgun og að láta ferðamenn borga meira en aðra er auðvitað gróf mismunun.

https://www.youtube.com/watch?v=rjxz2WGl6KA   


mbl.is Leggur til lausn við samgönguvandanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning

Hver heldur því fram að eina lögmæta ástæðan fyrir því að konur megi vera reiðar sé að þær séu á túr? 


mbl.is Konur megi bara vera reiðar á túr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litla-Hraun

 

Í frétt á Vísi á síðasta ári sagði Páll Winkel, fangelsismálastjóri, um Litla-Hraun:

Húsnæðið er kalt, þú getur ekki komist hjá því að hitta hina fangana ef þú býrð hérna. Það er erfitt að sinna meðferðarstarfi af því það eru fíkniefni í boði út um allt þegar þau koma inn. Vinnuaðstaða fangavarða; þeir kalla það tunnuna af því það er gluggalaust rými þar sem er ekki salerni. Þetta er bara gamalt.

Er það náttúrulögmál að fíkniefni séu "í boði útum allt" á Hrauninu? Hefur fangelsismálastjóri enga stjórn á þessu? Það segir sig sjálft að fíkniefni hafa áhrif á líðan og hegðun fanga.


mbl.is Þrír fangaverðir á spítala eftir árás fanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband