Færsluflokkur: Bloggar
Björt framtíð?
30.10.2013 | 17:27
Það er mikið til í þessu hjá Styrmi. Það má bæta því við að það þarf sterk bein til að vera í pólitík, eins og allir vita. Margaret Thatcher sagði: Það gleður mig alltaf mjög mikið þegar árás er sérstaklega særandi, því þá hugsa ég með sjálfri mér, Jæja, fyrst ráðist er gegn mér persónulega sýnir það að andstæðingar mínir eiga engin pólitísk rök eftir." Mig grunar að Jón Gnarr hafi einfaldlega ekki þá hörku, baráttugleði og ófyrirleitni sem atvinnustjórnmálamenn þurfa að búa yfir.
Jón Gnarr höfðaði til fólks vegna þess að hann er andsvar við hefðbundinni pólitík. Hann hefur lagt sitt af mörkum og ólíkt hefðbundnum stjórnmálamönnum veit hann hvenær hann á að hætta. Nú er komið að fólki sem er ósátt við hefðbunda pólitík að gera eitthvað í stað þess að sitja bara heima og nöldra.
![]() |
Gjörbreytt staða í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Umfjöllun óskast
30.10.2013 | 03:24
![]() |
Álögur hafa hækkað um 440 þúsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mbl vs. DV
29.10.2013 | 04:30
![]() |
Handrukkun vegna 7.000 króna? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vondir eru ekki vondir
28.10.2013 | 20:40
Þetta er merkilegt átak og það er um að gera að rannsaka einelti frá sem flestum sjónarhornum, en að gera alla að fórnarlömbum, gerendur jafn sem þolendur eineltis, er varhugavert og órökrétt, að mínu mati.
Í greininni stendur: Börn sem leggja aðra í einelti eru ekki vond, en þau þurfa hjálp við að uppræta neikvæða hegðun." Hvers vegna má ekki segja að börn sem leggja önnur börn í einelti séu vond? Væri ekki réttara að segja að börnin þurfi hjálp við að hætta að vera vond? Við erum það sem við gerum. Einstaklingur sem drekkur of mikið er alkóhólisti. Að segja: Fólk sem drekkur of mikið er ekki drykkjufólk, en það þarf hjálp við að uppræta neikvæða hegðun" er rökleysa. Til þess að geta breytt hegðun sinni verður fólk, börn jafnt sem fullorðnir, að horfast í augu við raunveruleikann.
![]() |
Gerendur eineltis þurfa líka hjálp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvar er Árni Johnsen?
28.10.2013 | 18:24
![]() |
Ég stend hér fyrir hönd álfanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Leyndardómar veggjakrotsins
28.10.2013 | 06:11
![]() |
Veggjakrot eykst í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Rokk ljóðskáld--"The toppermost of the poppermost"
27.10.2013 | 23:28

Megnið af dægurlagatextum er hnoð, en góðir rokktextar eru list. Lou Reed, sem lést í dag, var eitt fremsta rokkljóðskáld Bandaríkjanna. Að öðrum ólöstuðum er hann að mínu mati fjórða merkilegasta rokkskáld Norður-amerískrar tónlistarsögu. Flestir tónlistargagnrýnendur myndu að öllum líkindum setja Bob Dylan í fyrsta sætið. Ég myndi setja Jim Morrison í annað sæti og Leonard Cohen í það þriðja.
Auðvitað er þetta allt spurning um smekk, en það er stundum gaman að setja saman vinsældarlista til að örva heilbrigða samkeppni." John Lennon segir frá því að Bítlarnir grínuðust með það að þeir væru á leiðinni "to the toppermost of the poppermost."
Ef lesendur hafa áhuga á þessu viðfangsefni væri gaman að heyra hvaða fleiri Norður-amerískir söngvarar og textahöfundar eiga heima á lista yfir merk rokkljóðskáld.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Amerískt skáld deyr
27.10.2013 | 20:40
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Því miður
27.10.2013 | 03:57
![]() |
Hafa hlerað síma Merkel í 11 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hreinskilni?
26.10.2013 | 23:44
Í greininni stendur:
Hann [varaforsætisráðherra Kína] var hreinskilinn um að það hefði farið fram mikil vinna þar [í Kína] en að það væri líka verk óunnið. Það fylgdu því stór úrlausnarefni á sviði mannréttinda þegar að vöxturinn væri jafn mikill og hraður og í Kína," sagði forsætisráðherra.
Að kenna hröðum og miklum vexti um það að mannréttindamál séu í ólestri í Kína finnst mér nú ekki dæmi um hreinskilni. Í besta falli er það kurteisistal" svo ekki sé tekið sterkar til orða.
![]() |
Ekki bara kurteisistal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)