Færsluflokkur: Bloggar
Endurkoma appelsínugula mannsins með dauðu augun
18.3.2023 | 02:55
Og Trump notaði að sjálfsögðu UPPHAFSSTAFI og upphrópunarmerki!
![]() |
Trump snúinn aftur á Facebook |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bítlarnir . . . og Wings
17.3.2023 | 05:11
Það má rífast um ýmislegt en þegar kemur að tónlist er það erfitt að vera ósammála þessari niðurstöðu. Verð samt að koma að ódauðlegri setningu úr Alan Partridge atriði:
Who is Wings?
They are only the band the Beatles could have been.
![]() |
Merkasta hljómsveit sögunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Samræður um mannúðarmál
15.3.2023 | 05:23
Í fréttinni stendur:
Í tilkynningu frá yfirvöldum í Kreml kemur fram að leiðtogarnir muni ræða áframhaldandi samstarf landanna á fundinum og muni samræðurnar snerta á ýmsu þar á meðal stjórnmála-, viðskipta-, efnahags- og mannúðarmálum.
Maður þarf eiginlega að vera absúrd leikritaskáld til að geta ímyndað sér hvernig samræður Pútins og Assads um mannúðarmál hljómi.
![]() |
Pútín og Assad funda um samstarf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mótmælendur og athygli
15.3.2023 | 04:36
Mjög gott dæmi um það hvernig athyglissýki og aktívisimi fara oft saman. Athyglissjúklingar allra landa sameinist!
![]() |
Sagði berbrjósta mótmælanda að drulla sér af sviðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Menningarstuldur
14.3.2023 | 05:06
Klæðum alla íslenska leikara sem taka þátt í sýningunni í lopapeysur. Allt annað er menningarstuldur, ekki satt?
![]() |
Gripu til málamiðlana á annarri sýningu óperunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áætlanir og áróður
11.3.2023 | 19:39
Já, er ekki sátt og samlyndi yfirleitt besta leiðin? "Hjólreiðar eru hamingjusamasti ferðamátinn," segir í Hjólreiðaáætlun Reykjavíkur 2021-2025. Þetta er náttúrulega bara áróður. Það getur verið gaman að hjóla auðvitað en að reyna að þröngva þessum ferðamáta upp á fólk leynt og ljóst, sérstaklega eins og veðráttan er á landinu, er ávísun á ósætti og sundrungu.
![]() |
Við mótmælum þessu harðlega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Allir græða
10.3.2023 | 20:56
Allir græða! Húrra! Svo fellur þetta í gleymskunnar dá á morgun og næsta drama tekur við.
![]() |
Umfjöllunin hefði kostað 150 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hættuleg list
10.3.2023 | 18:17
Ef sýningin er svona hættuleg að mati Arnars Dan væri ekki heiðarlegast að hann neitaði að taka þátt í henni?
![]() |
Aldrei aftur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Forréttindaaktívismi
10.3.2023 | 06:45
Gaman verður að sjá hve margir mæta á mótmælin fyrir utan Hörpu. Fólk sem hefur tíma til að berjast gegn óperum, í stað þess að berjast gegn alvöru rasisma, hefur of mikinn frítíma og er að öllum líkindum haldið forréttindablindu. Gerið betur!
![]() |
Vísar ásökunum um rasisma á bug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hr. Carlson
9.3.2023 | 07:40
Málsókn Dominion Voting Systems hefur leitt til þess að enn sterkara ljósi er varpað á alls konar rugl og samsæriskenningaþvætting sem er í gangi á FOX. Áður en þetta mál kom upp höfðu meira að segja lögfræðingar FOX sagt að fólk eigi ekki að taka það sem Tucker Carlson segir alvarlega. En hann er nokkuð góður leikari og margir taka hann ennþá alvarlega.
![]() |
Sagðist hata Trump af ástríðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)