Færsluflokkur: Bloggar
Miðflokksklárinn
24.2.2019 | 00:58
Miðflokksklárinn prjónar kröftuglega, en verður hann Gamli Sorrí Gráni eftir næstu kosningar? Skoðanakannanir gefa það til kynna. Flokkurinn mælist nú með 6.1% fylgi. Hann fékk 10.9% í kosningunum 2017.
![]() |
Kosið verði aftur í þingnefndir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Látalæti
20.2.2019 | 05:01
Roger Stone var að gefa út bók um Trump í dag, sem er sennilega ástæðan fyrir þessum látalátum í honum. Ágætis auglýsing.
![]() |
Stone fyrir dómara vegna Instagram-færslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er orðið "brjálaður"
12.1.2019 | 05:55
Mér finnst eins og Gunnar Bragi Sveinsson eigi orðið "brjálaður" eftir að hann sagði, "Ég er að verða brjálaður!" á Klaustur Bar. En kannski er það bara ég sem er brjálaður.
![]() |
Ég var brjálaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn eini sanni
7.1.2019 | 09:49
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Áramót
2.1.2019 | 07:01
Ég er ekki frá því að áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur sé mun betra fararnesti fyrir nýtt ár en Áramótaskaupið.
![]() |
Getum öll lagt okkar af mörkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Veldi vasanna
15.6.2018 | 10:46
Feðraveldið í öllu sínu veldi. Þetta þarf auðvitað að banna.
![]() |
Typpavasabuxurnar það flottasta í sumar? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ungur ég var
15.6.2018 | 10:22
Cox?* Í alvöru? Svona fréttir voru ekki í Morgunblaðinu þegar ég var ungur :-)
----------------------
* Borið fram "cocks".
![]() |
Bestu staðirnir fyrir útikynlíf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Haraldur óhreini
14.6.2018 | 23:08
Í Dirty Harry myndunum var Inspector Harry Callaghan (Clint Eastwood) alltaf skammaður af andfúla yfirmanni sínum ef hann olli eignaspjöllum. Er það sama uppi á teningnum í Borg óttans?
![]() |
4 lögreglubílar skemmdir eftir eftirför |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Úti í eyjum
14.6.2018 | 04:48
Eyjamenn eru alltaf svolítið dramatískir, enda hefst saga heimkynna þeirra á því að Ingólfur Arnarson hefnir sín grimmilega á írsku þrælunum sem drápu fóstbróður hans, Hjörleif. Hjörleifur hafði sagt þrælunum að vinna að akuryrju en þeir "voru þess ófúsir" og ákváðu að drepa hann og menn hans og flýja með konur þeirra út í eyjar.
Hér er lýsing Jónasar frá Hriflu á því sem gerðist næst. Ingólfur mælti:
"Lítið lagðist hér fyrir góðan dreng, er þrælar skildu að bana verða, og sé eg svo hverjum verða, er eigi vill blóta." . . . Heldur hann nú með nokkra menn sjóleiðis vestur á bóginn, og finnur þrælana í eyjunum. Þeir urðu hræddir, er þeir urðu Ingólfs varir, enda beið þeirra bráður bani. Sumir féllu fyrir Ingólfi, en aðrir hlupu fram af háum hömrum og týndust þannig. Ingólfur gaf eyjunum heiti, það er þær hafa síðan, og nefndi þær Vestmanneyjar, því að Norðmenn kölluðu Írlendinga Vestmenn.
Menn voru ekkert að tvínóna við hlutina í gamla daga.
![]() |
Páli vikið úr fulltrúaráðinu í Eyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lif og lífsspeki
14.6.2018 | 04:33
Við ættum að hlusta á þessar ráðleggingar Önnu Sigfúsdóttur.
Í Kanada var kona sem hafði náð hundrað ára aldri spurð hvert leyndarmálið að langlífi væri. Hún svaraði að bragði: "Skiptu þér ekki af því sem þér kemur ekki við", sem var bæði nett skot á hnýsna blaðamanninn og svar við spurningu hans.
![]() |
Mikilvægt að æsa sig ekki um of |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)