Bloggfærslur mánaðarins, október 2013

Því miður

Gott að heyra að sumir Bandaríkjamenn mótmæla, en því miður held ég að flestir Bandaríkjamenn hafi ekki áhyggjur af þessu. Mörgum finnst þetta meira að segja alveg sjálfsagt, bara „hluti af alþjóðasamskiptum," eins og einn bandarískur fréttaskýrandi tók til orða. Þeir hafa meiri áhyggjur af því að Edward Snowden hafi skaðað ímynd Bandaríkjanna með því að upplýsa heiminn um stórfeldar njósnir ríkisins.
mbl.is Hafa hlerað síma Merkel í 11 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreinskilni?

Í greininni stendur:

„Hann [varaforsætisráðherra Kína] var hreinskilinn um að það hefði farið fram mikil vinna þar [í Kína] en að það væri líka verk óunnið. Það fylgdu því stór úrlausnarefni á sviði mannréttinda þegar að vöxturinn væri jafn mikill og hraður og í Kína," sagði forsætisráðherra.

Að kenna hröðum og miklum vexti um það að mannréttindamál séu í ólestri í Kína finnst mér nú ekki dæmi um hreinskilni. Í besta falli er það „kurteisistal" svo ekki sé tekið sterkar til orða.

 


mbl.is „Ekki bara kurteisistal“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta reglan

Láttu það eiga sig að fá þér tattú. 
mbl.is 10 tattú sem þú ættir að forðast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning

Hvað gerist ef barn vill ekki klæðast skólabúningi?
mbl.is Skólafötin bæta andann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin "óhrekjanlegu lögmál"

Bjarni segir: „sum hagfræðileg lögmál eru hins vegar óhrekjanleg." Gaman væri að fá lista yfir þessu „óhrekjanlegu lögmál". Eru þau til? Kannski. Kannski ekki.

Hagfræði er ekki raunvísindi. Marx og Engels töldu sína hagfræði vera "vísindalegan sósjalisma." Við vitum hvernig það ævintýri endaði. Þeir sem aðhyllast óhefta markaðsstefnu (laissez-faire capitalism) tala oft eins og þeirra túlkun á því hvernig markaðir virka séu náttúrulögmál. Við höfum séð oftar en einu sinnu og oftar en tvisvar hverjar afleiðingar óheftrar markaðsstefnu eru.

Ég tek það fram að ég er ekki að fullyrða neitt um það hvers konar markaðsstefnu Bjarni aðhyllist.

 



mbl.is Annar markaður myndast með miða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Michael Cane


Frelsi til að hugsa

Í greininni stendur: „Á 21. öld myndi jafnréttisbaráttan snúast um menningarleg og félagsleg réttindi og hvernig fólk hugsar meðvitað og ómeðvitað um konur."

Hugsum um þetta. Hvernig berst fólk gegn hugsunum án þess að saka aðra um "hugsanaglæpi" og nota meðvitað eða ómeðvitað þá taktík sem Orwell fjallar um í martröðinni um Stóra bróður? Fyrsta skrefið er að virða hugsanafrelsi. Róttækir hugsuðir og aðgerðasinnar á borð við Noam Chomsky eru góð fyrirmynd. Chomsky er mjög gagnrýninn, eins og allir vita, en hann berst fyrir málfrelsi og tjáningafrelsi fyrir alla. Hann segir: „Ef við trúum ekki á tjáningafrelsi fyrir fólk sem við fyrirlítum, þá trúum við alls ekki á tjáningafrelsi." Og svo höfum við auðvitað frelsi til að gagnrýna þessa skoðun, en hvað gefur okkkur þann rétt? Jú, mál- og tjáningafrelsi. 


mbl.is Fékk mikið hrós fyrir ræðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannréttindi

Að ræða mannréttindi við kínversk yfirvöld hefur hingað til ekki borið mikinn árangur. Þau líta á það sem afskipti af innanríkismálum landsins. En kannski taka kínversk yfirvöld sig á ef forsætisráðherra Íslands segir varaforsætisráðherra Kína að þetta gangi bara ekki lengur og að kínversk yfirvöld verði að fara að taka sig á, annars skrifi hann þeim alveg rosalega harðort bréf.
mbl.is Ræðir við varaforsætisráðherra Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Touché

Það er stórabróðursbragur á þessu og það er vægast sagt ósmekklegt að líkja ensku við nasisma. 
mbl.is Mótmælir „vanhelgun móðurmálsins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Listaskáldið góða / Böns of monní

Vonandi eru krónísk blankheit og hrakleg endalok Listaskáldsins góða ekki ávísun á neitt vesen.


mbl.is Tíuþúsundkallar í kassavís
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband