Bloggfærslur mánaðarins, desember 2015

Eyðimerkurstríð

Það þarf landhernað til að ráða niðurlögum Ríkis Íslams. Það er mjög ólíklegt að Obama fari út í eyðimerkurstríð og lái honum hver sem vill.


mbl.is „Þið eruð næstir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að ritskoða

Rasistar ritskoða, nasistar ritskoða, kommúnistar ritskoða og þeir sem ganga of langt í pólitískum réttrúnaði ritskoða, svo nokkur dæmi séu tekin. Þetta segir okkur ansi mikið. Þetta er fólkið sem telur sig vita betur en við hin og vill hafa vit fyrir okkur.

Mark Twain tók ritskoðun með jafnaðargeði. Hann sagði:

When a Library expels a book of mine and leaves an unexpurgated Bible lying around where unprotected youth and age can get hold of it, the deep unconscious irony of it delights me and doesn't anger me. 

Mark Twain


mbl.is Stikilsberja-Finnur tekinn af námskrá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Straight Outta Breiðholt

Það væri kannski fljótlegra að skrá það sem ungi maðurinn gerði ekki af sér. En þetta er náttúrulega allt þjóðfélaginu að kenna. wink

 

mbl.is Í vímu á stolnum bíl og vopnaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

On the Road

Lilli api lætur ekki loka sig inni í dýragarði og hann myndi ALDREI leika í IKEA auglýsingu. Lilli er sjálfstæður listamaðurapi sem fer alltaf sínar eigin leiðir á Brúðubílnum. Lilli er svo svalur að hann hefur aldrei lært að telja af því hann nennir því ekki.


mbl.is IKEA-apinn lifir góðu lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örugg lausn

Donald Trump er mikill aðdáandi múra. Hvernig væri að byggja múr í kringum hann? Þannig yrði hann öruggur og heimurinn yrði öruggur fyrir honum. Þetta er það sem kallast win-win á ensku. 

trump


mbl.is Trump „ógnar þjóðarörygginu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóð og járn

Þetta er það sem þarf að gerast. Venjulegt fólk, konur, karlar múslimar, kristnir og vantrúarfólk, þarf að taka höndum saman til að gera útaf við morðótt ofstækisfólk.

Maður skilur að fólk flýji Sýrland, en ástandið þar batnar ekki fyrr en fólk er reiðubúið að berjast fyrir lífi sínu. Líkt og Bismarck gamli sagði: „Helstu viðfangsefni samtímans verða ekki leyst með ræðuhöldum og meirihluta atkvæðum, heldur með blóði og járni." Því miður virðist þetta enn eiga við víða.


mbl.is Kristnar konur gegn Ríki íslams
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fangelsi

Þegar ég var við nám í Bretlandi las ég um breskar fótboltabullur sem voru handteknar í Svíþjóð og stungið inn. Þegar átti að hleypa þeim út og leyfa þeim að halda aftur heim vildu þeir ekki fara. En ég held að þeir hafi verið neyddir til að snúa heim að lokum.


mbl.is Óeirðir í bresku fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líf með Jesú

Biskup Íslands getur kannski sýnt mannúð og mildi sína í verki með því að bjóða flóttafólki að búa heima hjá sér. Hún gæti líka fylgt því sem Frelsarinn boðaði:

Far þú, sel allt, sem þú átt, og gef fátækum, og munt þú fjársjóð eiga á himni. Kom síðan, og fylg mér.

Biskupinn gæti til dæmis gefið fátækum eyðnismituðum börnum í Afríku eigur sínar. Þeirra þjáning er áreiðanlega meiri en þjáning flóttafólks frá Albaníu.

Jesus


mbl.is Gleymir mannúð og mildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hundalíf

Gott að Viðar og Sveinn fengu hundinn sinn aftur, en það eru einfaldar ástæður fyrir því að hundar eiga ekki að vera í bönkum. Svarið er ekki bara "af því bara" eins og Viðar veit eflaust vel. Margir viðskiptavinir yrðu hundóánægðir með það, t.d. þeir sem eru hræddir við hunda eða kæra sig einfaldlega ekki við ónæðið sem þeim fylgir. 

Hundur


mbl.is Öryggisvörður bjargaði Drakúla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Köld kveðja

Scott Weiland átti við ýmis vandamál að stríða. Félagar hans í Stone Temple Pilots gáfust til dæmis upp á honum. En þetta eru fremur kaldar kveðjur frá hans fyrrverandi. Hann gafst ekki upp, eins og hún heldur fram. Blessaður maðurinn dó úr hjartaslagi.

Hér er lagið "Creep" með Stone Temple Pilots, með textabroti:

Feelin' uninspired

Think I'll start a fire

Everybody run
Bobby's got a gun
Think you're kinda neat
Then she tells me I'm a creep
Friends don't mean a thing
Guess I'll leave it up to me

Take time with a wounded hand
'Cause it likes to heal
Take time with a wounded hand
Guess I like to steal
Take time with a wounded hand
'Cause it likes to heal, I like to steal

I'm half the man I used to be
This I feel as the dawn
It fades to gray

https://vimeo.com/70705335

 


mbl.is Scott dó fyrir mörgum árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband