Bloggfærslur mánaðarins, mars 2015
Trú innri friðar
31.3.2015 | 17:52
Og ég sem hélt að Búddismi væri trú hins innri friðar og að búddístar létu ekki eitthvað unglingagrín á fámennri eyju í Norður Atlandshafi angra sig. En fyrst búddistarnir eru orðnir reiðir er ólíklegt að það rói þá að setja enskan texta á myndbandið. Verða þeir þá ekki bara ennþá reiðari?
Verslingar vekja reiði í Taílandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vísindi og trú
30.3.2015 | 23:02
Vísindakirkjan tvinnar saman vísindi og trú. Er það ekki win-win? En, nei, nei, alltaf þurfa þessir óþolandi efasemdamenn að eyðileggja allt! :)
Skuggahliðar kirkjunnar afhjúpaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Grátt silfur
29.3.2015 | 22:18
Menn elda grátt silfur. Þeir elta það ekki.
Clarkson getur sjálfum sér um kennt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Með vottorð í stjórnmálum
29.3.2015 | 21:08
Jimmie Åkesson ætti kannski að íhuga að fara aftur í veikindafrí.
Viðtal við Åkesson veldur fjaðrafoki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Smá spurning
29.3.2015 | 18:52
Hildur Guðbjörnsdóttir skrifar um grein Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur:
Blað sem kallar sig Kvennablaðið ætti kannski að hugsa sig tvisvar um áður en það birtir pistil . . .
Uh, er þetta ekki klassískt dæmi um "skömmun" og þöggun? Ég bara spyr.
Sakar Kvennablaðið um drusluskömmun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sögukennsla með Eddie Izzard
28.3.2015 | 21:05
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Meira réttlæti
26.3.2015 | 17:46
Það verður að setja kynjakvóta á þetta. Annars hefur feðraveldið unnið.
Þingkona sýnir á sér geirvörtuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Regluverk
22.3.2015 | 00:41
Ingibjörg Sólrún segir:
Það er ekkert athugavert við það að bjóða sig fram gegn sitjandi formanni en Samfylkingin hefur mótað sér ákveðnar reglur um hvernig formannskjör eigi að fara fram og það er mjög mikilvægt að þær reglur séu virtar en ekki reynt að nýta glufu í regluverkinu til að steypa sitjandi formanni.
Er glufa" í regluverkinu, eða er Ingibjörg Sólrún bara ósátt við að einhver bauð sig fram geng sitjandi formanni? Hún getur ekki sýnt fram á að framboðið hafa verið á skjön við núverandi reglur flokksins. Kosningin er annað hvort lögleg eða ólögleg. Enginn hefur sýnt fram að að hún sé ólöglegt.
Til að fá á hreint hvort flokksmenn eru sáttir við núverandi fyrirkomulega væri best að kjósa um það í almennri kosningu. Eru flokksmenn sáttir við að hægt sé að bjóða sig fram gegn formanni á aðalfundi eða ekki? Ef flokkurinn getur ekki haft svona grunnatriði á hreinu er hann ólíklegur til að njóta trausts kjósenda.
Framboðið var misráðið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þingræði? Hvað er nú það?
16.3.2015 | 03:54
Í greinnni stendur:
Björn Ingi Hrafnsson, umsjónarmaður Eyjunnar, spurði Gunnar Braga út í vinnubrögðin: hvort ekki hefði verið réttast að fara með afturköllun ESB-umsóknar fyrir þingið. Gunnar sagði það hafa verið reynt fyrir ári síðan en að tillaga ríkisstjórnarinnar hefði verið tekin í gíslingu af stjórnarandstöðunni. Ríkisstjórnin taldi því farsælast að ljúka viðræðum með þeim hætti sem varð þar sem ný tillaga hefði að öllum líkindum verið tekin í gíslingu af stjórnarandstöðunni . . .
Já, þingræði getur verið þungt í vöfum. Þess vegna er miklu einfaldara að leiða svoleiðis leiðindi bara hjá sér og gera það sem manni dettur í hug.
Fylgi Framsóknarflokksins mældist 11% í síðustu skoðanakönnun. Framsókn hefur engu að tapa, þannig að maður getur kannski skilið að flokkurinn hafi gert þetta. En að Sjálfstæðisflokkurinn hafi ákveðið að taka þátt í þessum gjörningi sýnir furðu mikinn skort á sjálfstæði og sjálfsbjörg. Þetta getur bara skaðað orðspor flokksins.
Ekkert valdarán átti sér stað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Spurning um að bíða aðeins?
15.3.2015 | 00:14
Stjórnarandstæðingar í Rússlandi þurfa kannski bara að bíða í nokkra mánuði þangið til Pútín viðurkennir þátt rússneskra stjórnvalda í því sem er að gerast í Úkraínu--eins og hann gerði með þátttöku rússneskra stjórnvalda í því sem gerðist á Krímskaga, þrátt fyrir að hafa neitað öllu í nokkra mánuði. Allir helstu andstæðingar Pútíns í Rússlandi er horfnir yfir móðuna miklu. Hann getur sagt og gert það sem hann vill.
UPPFÆRT: Þetta tók styttri tíma en ég bjóst við. Í nýrri frétt Morgunblaðsins sendur:
Þá sagði hann í heimildamyndinni að hann hefði sent rússneskar hersveitir yfir til Úkraínu til að afvopna 20 þúsund úkraínska hermenn.
Skýrsla Nemtsov birt í apríl | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 16.3.2015 kl. 03:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)