Bloggfærslur mánaðarins, mars 2015

Smá upprifjun um efnahagsundrið Ísland


mbl.is Fá ekki gögn um uppljóstrara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pravda

Kalda stríðinu er greinilega lokið þegar Morgunblaðið hljómar eins Pravda. Þetta apparat VTSIOM er ríkisapparat. Ef ég byggi í Rússlandi og hringt væri í mig og ég spurður hvort ég væri ánægður með Pútín myndi ég hiklaust segja, „JÁ! Ég er hæstánægður með hann. Frábær gaur!" Ég myndi ekki taka sjensinn á öðru. Ef þeir þá hafa fyrir því að hringja í fólk. Það er náttúrulega einfaldara að ákveða bara prósentutöluna fyrirfram.

Mbl


mbl.is Vinsældir Pútíns aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elvis

Smá klassík frá Elvis.


mbl.is Herma ekki eftir Elvis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilboð

Nokkuð frumleg útfærsla á „tveir fyrir einn" tilboði.


mbl.is Eiginkona fylgir með húsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plan B

Svo þetta var Plan B hjá Tsipras og félögum. Núna er spurning hvort Tyrkland og Ísrael geri kröfur um stríðsskaðabætur vegna stríðsglæpa Grikkja gegn Tyrkjum og gyðingum í sjálfstæðisstríði Grikkja í lok nítjándu aldar. Enhvern veginn grunar mig svo verði ekki. En hver veit.


mbl.is Stríðsskaðabætur aftur á borðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ættarnöfn

Eru núverandi ættarnöfn ekki líka "hörð at­laga að germanska föður- og móður­nafna­kerf­inu sem ein­göngu hef­ur varðveist hér á landi". Til að varðveita germanska menningu ættu ekki allir ráðamenn og áhrifamenn með ættarnöfn að leggja þau niður hið snarasta, svona til að sína gott fordæmi?


mbl.is Tölur og tákn verði leyfileg sem nöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirskriftalistar

Er einhvers staðar hægt að skrifa undir undirskriftalista gegn lúxusvandamálaundirskriftalistum?


mbl.is „Fita er ekki tilfinning“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um nöfn

Í mannanafnanefnd er maður sem heitir Helgi Áss Grétarsson og einn varamaður heitir Flóvenz að eftirnafni. Myndu þessi nöfn vera samþykkt í dag? Veit sá sem ekki spyr. 

Eitt sinn flutti maður, sem var fæddur í Svíþjóð, til Íslands. Þegar hann gerðist íslenskur ríkisborgari þurfti hann að skiptu um nafn. Honum þurfti þetta svolítið súrt, því nöfn eru nátengd sjálfsmynd manna. Allt í einu þurfti hann að heita eitthvað annað. Hann spurði hvort hann mætti heita Kristján Eldjárn. Það var bannað. En það er íslenskt nafn! sagði hann. Það skipti ekki máli. Hann mátti ekki heita Kristján Eldjárn. 


mbl.is Telur frumvarpið ekki vera til bóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Róttæk hugmynd

Allir „brugðust" fjölskyldunum og fólkið segist ekki hafa hugmynd um neitt. Hvernig væri að fólkið liti aðeins í eigin barm og tæki ábyrgð á eigin börnum? Á Öld fórnarlambsvæðingarinnar virðist það vera rosalega róttæk hugmynd.


mbl.is Földu bréfin og létu sig hverfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nemtsov er ekki hér

Pútin ætti að lifa þetta af. Hann er ekki á flæðiskeri staddur. Boris Nemtsov skrifaði skýrslu árið 2012 um auð Pútins. Fjallað er þetta á Bloomberg vefsíðunni:

Using information from open sources, mainly newspaper reports, the report describes how Putin's relatives and friends got rich during his rule. It also attempts to pull together bits of information about Putin's perks as head of state, including luxury yachts and stately residences. An entire chapter is devoted to Putin's collection of expensive Swiss watches, which he could not have acquired on his official salary of less than $200,000 a year.

Heimild: http://www.bloombergview.com/articles/2013-09-17/vladimir-putin-the-richest-man-on-earth

Skýrsla hét „Pútín. Spilling". Nemtsov er ekki lengur hér.

Boris Nemtsov


mbl.is Pútín lækkar laun sín um 10%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband