Færsluflokkur: Bloggar

Að kunna ekki að skammast sín 2

Þessi samlíking Berlusconis við Helförina sýnir að ósmekklegheit manna af hans sauðahúsi eiga sér engin takmörk. Og það kemur auðvitað ekkert á óvart.
mbl.is Börn Berlusconi eins og gyðingar í Helförinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíminn og vatnið

Og Glen Campbell er kominn með alzheimer. „Að eldast er ekki fyrir skræfur," er stundum sagt í hinum enskumælandi heimi. 
mbl.is Kris Kristofferson að missa minnið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gimme Shelter


Lög og helgisiðir

Þegar helgisiðir stangast á við lög í frjálslyndu lýðræðisríki ber iðkendum trúarbragða að virða landslög. Málið er ekki flóknara en það.

Íslensk stjórnvöld eru ekki að „beita sér gegn helgisiðum gyðinga". Það eru strámannsrök. Stjórnvöld eru að vernda rétt barna.


mbl.is Leggst gegn banni við umskurði drengja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frelsi til að kaupa fjölmiðla

Við þurfum að hafa áhyggur þegar auðmenn eignast fjölmiðla og „ætla líka að fara að stjórna lífi okkar" með því. Hér „á lýðræðið að taka við af markaðnum," segir Hannes Hólmsteinn í þessu viðtali.

Er Hannes Hólmsteinn búinn að missa trúna á markaðinn? Spyr sá sem ekki veit.


mbl.is Of mikið gert úr áhrifum kolkrabbans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarleg rök

Málfrelsi er semsagt ekki lýðræðinu til framdráttar. Þá vitum við það.
mbl.is „Lýðræðinu ekki til framdráttar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smá viðbót

Það vantar nú svolítið í þessa frétt. Dæmi um mótmælaspjöld voru „Ungt fólk gegn umburðarlyndi" og „Hvítt afl". Lögreglan handtók mótmælendur sem voru með nasistamerki, sem eru bönnuð í Rússlandi, o.s.frv.

Maður hefði kannski haldið að þjóð sem varð illilega fyrir barðinu á nasisma myndi láta öfgahægrimennsku eiga sig, en svo er greinilega ekki.

Heimild: Deutsche Welle 


mbl.is Tíu þúsund þjóðernissinnar í göngu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umfjöllun óskast

Ef Morgunblaðið vill vera annað og meira en áróðursmaskína fyrir hugmyndir sem áttu stóran þátt í því að setja landið á hausinn, þá verða blaðamenn að nota gagnrýna hugsun þegar fjallað er um þær. 
mbl.is Háir skattar á ríkt fólk skaðlegir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Átta einkenni siðblindu

Hér eru átta einkenni siðblindu samkvæmt Robert D. Hare, sem skrifaði bókina Without Conscience: The Disturbing World of the Pscychopaths Among Us:
  1. Tungulipurð/yfirborðsmennska
  2. Eigingirni og stórmennskuhugmyndir
  3. Engin eftirsjá eða sektarkennd
  4. Skortur á samhyggð
  5. Grunnar tilfinningar
  6. Skortur á sjálfstjórn
  7. Ásókn í spennu
  8. Ábyrgðarleysi
Og líti nú hver í eigin barm og í kringum sig. En sá siðblindi hefur að sjálfsögðu engar áhyggjur. Hann sér ekki eftir neinu.

mbl.is Er yfirmaður þinn siðblindur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baggar Hildar

„Kynlifendur í Frakklandi, það er að segja þeir sem hafa viðurværi sitt af kynlífsþjónustu, eru með böggum hildar þessa dagana . . .". Þetta er nokkuð lunkin tenging við íslenskan femínisma hjá höfundi greinarinnar. Og „kynlifendur" hlýtur að vera alveg glænýtt orð. Skapandi blaðamennska hér á ferð og allt í fína með það.
mbl.is „Vændi er líka vinna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband