Færsluflokkur: Bloggar

Skattheimta

Mikið eru svör Helgu Völu sjálfhverf. Þar að auki virðist hún ekki skilja hvað millistétt er.


mbl.is Segir erfðaskattinn sanngjarnastan allra skatta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trump og dramatíkin

Bandaríkjamenn eru dramatísk þjóð. Dramatík er sérgrein Trumps. Allir græða!

Það verður spennandi að hlusta á ræðuna sem hann ætlar að halda 4. april kl. 20:15 að staðartíma á óðali sínu, Mar-a-Lago í Flórída.


mbl.is Trump kominn til New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bíla

Einn af eigendum Hopp segir: „Þetta er næsta skref í bylt­ing­unni gegn einka­bíln­um. Besti bíll­inn er eng­inn bíll en sá næst­besti er sá sem þú deil­ir með öðrum og við vilj­um gera fólki auðvelt fyr­ir að deila bíl­um, bæði sem það keyr­ir sjálft og sem aðrir keyra."

Þetta er hans skoðun. Önnur skoðun er að einkabíllinn þýðir frelsi og flestir Íslendingar elska frelsi grunar mig, sem er auðvitað hið besta mál.

 


mbl.is „Tímarnir breytast og leigubílarnir með“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sveiflur

Þegar frjálslynd lýðræðisríki eins og Svíþjóð og Finnland sveiflast til hægri gefur það sterklega til kynna að velferðarkerfið sé orðið of þungt í vöfum, of afskiptasamt og of kostnaðarsamt. Stundum fær fólk bara nóg.


mbl.is Orpo næsti forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Upphaf og endir

Heimurinn hefur verið að farast frá upphafi veraldarinnar. 


mbl.is Lituðu eitt þekktasta kennileiti Rómar svart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páskaegg

Ég ætla rétt að vona að þetta sé aprílgabb.


mbl.is Páskaegg fyllt með grænmeti loksins fáanleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Markaðurinn

Hugtakið markaðsbrestur er svolítið skrítið og mögulega þversögn. Markaðurinn snýst um framboð og eftirspurn og breytist og þróast í sífellu. Svo er greinarmunur á einkarekstri og ríkisrekstri. Er það sjálfsögð krafa að ríkið--skattaborgarar--styrki einkafyrirtæki? Er það ekki auk þess þversagnakennt? Kapítalistar hafa tilhneigingu til að vilja hirða gróðann þegar vel gengur en að krefjast þess að ríkið--skattborgarar--hlaupi undir bagga þegar illa gengur. Er það sanngjarnt? Er það skynsamlegt?


mbl.is Áhyggjur af yfirvofandi gjaldþroti Torgs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

No comment

Stundum er best að segja ekki neitt.


mbl.is Neitaði að tjá sig um Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bam

Blessaður karlinn. Hann var hluti af forheimskandi fjöldamenningu sem upphóf lífshættulegan fávitaskap og uppskar frægð og frama fyrir það. Núna er partíið búið en hann heldur áfram að djamma og líf hans verður sorglegra og sorglegra með hverju árinu sem líður. Þess má geta að hann er með orðin Stórfréttir í Reykjavík tattóveruð á sig.


mbl.is Bam Margera handtekinn aftur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afrek

Þetta er náttúrulega mikið afrek, að hanga þurr í heilar fimm vikur.


mbl.is Edrú í fimm vikur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband