Færsluflokkur: Bloggar
Lesið í mynd
12.7.2015 | 23:22
Þessi mynd segir ansi mikið. Tsipras ekki með sama glottið og áður, virðist við það að fara að gráta, Merkel, þýska stálið, einbeitt og Frakkinn Hollande gufulegur að vanda.
![]() |
Þetta er valdarán |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Dump Trump
12.7.2015 | 23:10
Þögli meirihlutinn hefur snúið aftur og við ætlum að endurheimta landið okkar, segir Trump. Stuðningsmenn Trumps eru hvorki þöglir né meirihluti. Hann sagði nýlega, "I'm, like, a really smart person." Þetta mætti þýða svona: "Ér alveg obboslea gáfaður, skiluru?"
![]() |
Þessi gaur er ömurlegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Eiginmaður minn, slátrarinn
12.7.2015 | 18:43
Spurning hvað skólastúlkunni finnst þegar hveitibrauðsdögunum líkur.
![]() |
Giftist rauðhærða stríðsmanninum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gríska tragíkómedían
10.7.2015 | 19:06
The Guardian hefur eftirfarandi að segja um stöðu mála:
Greeks will be asking today what has been the point of the last month of diplomatic theatre: the endless meetings, the violent rhetoric, the walkouts, and the calling of the referendum. The answer is less than nothing. Untold damage has been caused to the Greek economy for no purpose whatsoever. Tsipras is a much-diminished figure as a result of the events of the last two weeks, and ought to pay a heavy political price.
Eins og sönnum stjórnmálamanni sæmir lýsir Alexis Tsipras sennilega yfir sigri.
![]() |
Margar hindranir í veginum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Bjór
9.7.2015 | 20:08
Ég man þegar bjór var bannaður á Íslandi. Það var alltaf svolítið erfitt að skýra bannið fyrir útlendingum. "Ha," sögðu þeir. "Þið megið drekka vín og vodka en ekki bjór?" Þótt maður væri á móti banninu var maður svo meðvirkur að maður skyldi rökin fyrir banninu og reyndi að útskýra málið. "Já, sko, vegna þess að við erum ekki með bjór þá detta flestir bara í það um helgar. En ef við fengjum að drekka bjór þá myndu svo margir gerast dagdrykkjumenn og drekka í vinnunni líka. Þá yrðum við eins og Danir." Útlendar hristu yfirleitt bara hausinn og brostu út í annað.
![]() |
Kynna íslenskan bjór í Lundúnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sjónarmið
9.7.2015 | 19:01
Þau skynsamlegu sjónarmið, sem sett eru hér fram af forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma, hefðu átt að koma fram með upprunalegu fréttinni. En betra er seint en aldrei.
![]() |
Hundar gætu truflað jarðsetningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Berlusconi
8.7.2015 | 23:41
Berlusconi alltaf hress! í lok greinarinnar á að standa "skammt" ekki "skatt", ekki satt? :)
![]() |
Berlusconi hlaut þriggja ára dóm |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gamaldags
7.7.2015 | 01:18
Ég er svolítið gamaldags. Mér finnst að svona hlutir séu einkamál. Er ekki öll vinna stressandi? Í gamla daga unnu menn sína vinnu og drukku á kvöldin, eða í sumarbústaðnum, ef þeir áttu við vandamál að stríða.
En svona var hin gamla íslenska karlmennskuímynd. Kannski er nýja ímyndin betri. Við sjáum hvað setur.
Ég tek það fram að mér finnst Sigmar góður sjónvarpsmaður.
![]() |
Sigmar kveður Kastljósið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Já, en . . .
3.7.2015 | 04:07
Hey, en við erum með besta forsætisráðherrann! Hér teiknar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á Alþingi.
![]() |
Ísland er ömurleg og daunill eyja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Thicke
3.7.2015 | 03:34
Svotil allt við þennan gæja er feik. Það er nýbúið að dæma hann fyrir að stela lagi eftir Marvin Gaye. Lagið "Living in New York City", sem er plötunni um Paulu, er stolið frá James Brown ("Living in America"). Lagið "Whatever I Want" er stæling á "Sunshine of Your Love" með Cream. Meira að segja plötuumslagið er stolið frá Jimi Hendrix/Band of Gypsies.
![]() |
Platan um eiginkonuna vandræðaleg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)