Með og á móti

Yfir tíu þúsund manns hafa skrifað undir yfirlýsingu um að Sigmundur Davíð segi af sér. Yfir sjö hundruð hafa skrifað undir stuðningsyfirlýsingu við hann.

Þessi munur segir okkur kannski svolítið. En samkvæmt Visi.is segir Sigmundur Davíð sjálfur að staða sín hafi aldrei verið sterkari. Fylgi Framsóknarflokksins er 12.8% og það var áður en þetta mál kom upp. Í apríl 2013 var fylgi flokksins 32.7%. Hvernig Sigmundur Davíð fær það út að staða sín hafi aldrei verið sterkari skil ég ekki alveg, en það er kannski ekkert skrítið. Það er svo margt sem ég skil ekki í málflutningi hans.

Heimild um skoðanakannanir: MMR.

Sigmundur Davíð


mbl.is Líklega rætt á þingflokksfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hvada. Mundur ??

Helga Kristjánsdóttir, 29.3.2016 kl. 02:39

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hvaða hvada, Helga?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.3.2016 kl. 06:39

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Sigmundur er á slíku flugi núna að hann þarf ekki nema örlítinn kraft (eina kókómjólk?) til viðbótar og hann yfirvinnur þyngdarafl Jarðar og fer á braut. Hann verður fyrsta gervitungl íslendinga, nema hann verði í fánalitum Tortola.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 29.3.2016 kl. 06:48

4 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir að líta við, gott fólk. Ég skil ekki athugasemdina, Helga. Ég er svo fattlaus :)

Tortola virðist vera flott pleis, Axel Jóhann! 

Wilhelm Emilsson, 29.3.2016 kl. 08:16

5 identicon

Sæll Wilhelm - sem og aðrir gestir, þínir !

Wilhelm og Axel Jóhann !

Nafna mín Kristjánsdóttir (kl. 02:39), á líkast til við prentvillu þína Wilhelm, í seinni málsgreininni, þar sem þú skrifaðir nundur í stað munar, sýnist mér.

En: beztu þakkir fyrir Wilhelm, að halda rækilega á lofti GLÆPAVERKUM þessa tvíburabróður Norður- Kóreanska gerpisins Kim jong- Un, þar sem vart má á milli sjá, hvor er hvor:: Sigmundur Davíð, eða Kim skrattakollur.

Afbragðs lýsing þín Axel Jóhnnn - í athugasemd nr. 3, jafnframt.

Vonum svo piltar: að nafna og fleirra hrekklaust fólk, hætti að bera blak af þessu skrípi, sem ber forsætisráðherra titil, hérlendis.

Ég hélt forðum - að Jóhanna Sigurðardóttir, sú illyrmis druzla,  hafi toppað ósómann, að baki titilsins, á sínum tíma (2009 - 2013) / annað: hefir komið á daginn, sem kunnugt er.

Með beztu kveðjum: sem oftar - af Suðurlandi / 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.3.2016 kl. 12:26

6 identicon

.... mundur / ekki: nundur, eins og mér varð á, að skrifa, hér áðan.

Afsakið - klaufalega Glámskyggni, mína.

ÓHH 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 29.3.2016 kl. 13:50

7 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Takk fyrir Óskar minn Helgi,það er rétt sem þú glöggur sérð. Við Wilhelm vorum nýbúin að létt,deila um stafsetningavillur,eða frekar ásláttarvillur,svo stríðnin varð að fá að leika lausum hala þegar tækifærið mændi svona á mig. Mb.Kv.

Helga Kristjánsdóttir, 29.3.2016 kl. 17:14

8 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Heiðarleiki í hverju máli skal alltaf í hávegum hafður....

Helga Kristjánsdóttir, 29.3.2016 kl. 17:23

9 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk, Helga og Helgi, fyrir að benda á stafsetningarvilluna! :)

Já, höfum heiðarleikann og húmorinn í hávegum, Helga!

Wilhelm Emilsson, 29.3.2016 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband