Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2015

Betra atriði

Hér er miklu betra atriði með Bradley Cooper. 


mbl.is Hæðst að barninu í American Sniper
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málfrelsi

Fínt að fá gagnrýna umræðu um málfrelsi. Heimspekingurinn Róbert H. Haraldsson kemur með skynsamlegustu rökin hér að mínu mati--enda þurfa heimspekingar að hugsa málin ofan í kjölinn áður en þeir tjá sig.


mbl.is Þurfa stundum að hneyksla eða móðga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svefninn langi

Saksóknarinn sefur nú svefninum langa. Dead men tell no tales.

The Big Sleep


mbl.is Átti að bera vitni en fannst látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skothríð í eyðimörkinni

Kanadískir sérsveitarmennKanadísku sérsveitarmennirnir gerðu aðeins meira en að skiptast á skotum við vígamenn ISIS. Það var skotið á þá með sprengjuvörpum og vélbyssum. Þeir svöruðu fyrir sig með leyniskyttuskothríð og gerðu staðinn sem skotið var frá óvirkan, eins og forsvarsmaður kanadísku sérsveitanna orðaði það.

ISIS menn standa sig betur gegn vopnlausum samkynhneigðum mönnum, sem þeir kasta fram af byggingum, og konum sem þeir grýta í hel fyrir meint framhjáhald.

Heimild: http://www.cbc.ca/news/politics/isis-fight-canadian-special-forces-returned-fire-in-last-week-1.2917777


mbl.is Skiptust á skotum við íslamista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Matur

MaturÁtvagl eða matarfíkill? Er munur á því? Og er fíkn það sama og sjúkdómur?

Gott að geta kennt ömmu um að vera offitusjúklingur :) En ef það skilar árangri að kalla átvagl matarfíkil þá er það í góðu lagi. En virkar það? Spyr sá sem ekki veit. 


mbl.is Þegar amma er dópsalinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óumbeðin athugasemd

Það ættu þá að vera hæg heimatökin þegar Herðubreið fjallar um málið.

Herðubreið


mbl.is Segir Björgvin hafa dregið sér fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðleyst vandamál

Það er einföld lausn á þessu stóra vandamáli. Bara borða aðeins minna og hreyfa sig svolítið meira.


mbl.is Lítið gert í offituvandanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning

Hefur Ríki íslams (ISIS) heldur ekkert með íslam að gera? Gaman væri að fá álit imamsins á því. Ég hef heyrt jafnvel kristið fólk halda þessu fram, því margt trúað fólk vill alls ekki viðurkenna að voðaverk séu fram í nafni trúarbragða. Það vill bara velja bestu molana úr trúarritum sínum. Aukinn hópur kristinna manna trúir ekki lengur á helvíti, til dæmis, en heldur áfram að trúa á himnaríki.

Það mega bókstafstrúarmenn eiga að þeir gleypa við öllu ruglinu, líka því sem er erfitt fyrir þá, en velja ekki bara úr það sem er hentugt og þægilegt að trúa á.

Trúarbrögð


mbl.is Hafa ekki næga þekkingu á trúnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bob Dylan, "Don't Think Twice, It's All Right"

 


Íslam og Ísland

Svona ummæli eins og Nadia Tamimi fékk eru auðvitað ömurlegur ruddaskapur og dæmigert fyrir pakk sem gerir svona að þora ekki að koma fram undir eigin nafni.

Fordómar og hatur grassera á Íslandi eins og annars staðar. Hve margir Íslendingar hafa til dæmis ekki verið barðir af öðrum Íslendingum fyrir að vera úr „röngu" bæjarfélagi? Talandi um að berja fólk. Hér er múslimaklerkur, vel máli farinn og greinilega vel menntaður í íslömskum fræðum, að svara spurningu frá konu í Noregi um hvort það sé í lagi, samkvæmt íslömskum siðvenjum, að berja eiginkonur. Klerkurinn skýrir þetta út fyrir konunni.

Gaman væri að vita hvort hófsamir múslimir eru sammála klerknum.

 


mbl.is Fékk hatursskilaboð eftir ræðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband