Ríkisstjórn

Þetta er svona Dumb and Dumber dæmi.


mbl.is Hverja skipar Trump í ríkisstjórn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll.

Það er svolítið merkilegt að fylgjast með fólki fá flog vegna sigurs Trump. Verður Trump virkilega svona slæmur forseti? Veit hann ekkert í sinn haus?

Margt af þessu á auðvitað eftir að koma í ljós en höfum í huga að hann sigraði marga úr eigin flokki í forvalinu. Það var ekki auðvelt. 

Svo er auðvitað barnaskapur að halda því fram að tugir milljóna Bandaríkjamanna séu svo vitlausar að kjósa Trump. Kannski vissu þessir kjósendur eitthvað sem andstæðingar Trump hérlendis vissu ekki?

Vita stuðningsmenn Hillary hérlendis hve mikið þetta svokallaða Obamacare hefur kostað venjulegt fólk? Vita stuðningsmenn Hillary hérlendis hve mörgum verksmiðjum í USA hefur verið lokað undanfarin ár? Vita vinstrimenn að atvinnuleysistölur þarna fyrir vestan segja ekki nema hluta sögunnar (líkt og sambærilegar tölur frá ESB). Vita vinstri menn hvað Obama hefur hækkað skuldir USA mikið? Vita vinstri menn hverjir borga þær? Vita vinstri menn hve illa hefur farið fyrir miðstéttinni þar vestra undanfarið? Vita vinstri menn hve margir þar vestra eiga um sárt að binda vegna ólöglegra innflytjenda? Er alveg hræðilegt af frambjóðanda að vilja að farið sé eftir þeim lögum sem í gildi eru? Hefur staða svartra í USA batnað eða versnað á meðan Obama var forseti?

Einnig hefur því verið fleygt að það hafi bara verið ómenntaða fólkið sem kaus Trump. Það má vel vera en menntaða fólkið sem hefur þá væntanlega stjórnað USA undanfarin 8 ár hefði nú gott af því að líta í eigin barm. Obama hefur oftsinnis reynt að fara á svig við þingið og fengið háðulega útreið fyrir dómstólum svo eitt lítið dæmi sé tekið.

Vita menn hvernig það er fyrir þjóð þegar tvöfalt kerfi gildir í réttarkerfi lands? Ef Obama náðar ekki Hillary áður en hann lætur af embætti fær hún dóm (hann mun máða hana svo hann verði ekki sjálfur dreginn inn í rannsóknina). Vinstri menn hér hafa alveg sleppt því að setja sig inn í hvað Hillary gerði á meðan hún gengdi embætti utanríkisráðherra. Snýr klárt fólk blinda auganu að staðreyndum? 

Að lokum vil ég taka skýrt fram að ég er ekki stuðningsmaður Trump en það er ferlega hallærislegt þegar menn setja sig á háan hest án þess að hafa kynnt sér málin. Sumir skýra tap Hillary með rasisma (var það þá rasismi sem kom Obama í embætti?). Simple minds, simple solutions.

Hitt er svo vert að nefna að kjör Trump mun ekki breyta eins miklu og menn halda. Því miður fyrir þessa frábæru þjóð, vini okkar, eru ekki bjartir tímar framundan vegna þess hve illa hefur verið haldið á peninga- og efnahagsmálum þarlendis frá 1971. 

Vinstri menn munu kenna Trump um allt þegar þar að kemur, setja sig á háan hest og segja: "Ég sagði þér". Simple minds, simple solutions. 

Helgi (IP-tala skráð) 10.11.2016 kl. 13:13

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Þú verður að spyrja vinstrimenn um þetta, Helgi. Ég er miðjumaður.

Reyndar lítur út fyrir að meirihluti Bandaríkjamanna hafi kosið Hillary Clinton, en kosningarkerfið er þannig að Trump vinnur. En við þurfum ekki að fjalla um kerfið hér. Ekkert kerfi er fullkomið. En þó að meirihluti geri eitthvað er það ekki endilega besti kosturinn, en við sem trúum á lýðræðið virðum vilja meirihlutans.

Ert þú ekki að setja þig á háan hest? Þú gefur þér það að ég hafi ekki kynnt mér málið.

Wilhelm Emilsson, 11.11.2016 kl. 07:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband