Vandræði

"Þau lenda í hegðun­ar­vanda í skóla, á heim­il­inu eða með vin­um."

Hvernig "lendir maður í hegðunarvanda". Kemur maður sér ekki í vandræði með hegðun sinni?  Þetta snýst ekki bara um tungumál, heldur skilning á hegðun. Erum við fórnarlömb sem eru alltaf að "lenda í einhverju" eða berum við ábyrgð á hegðun okkar?


mbl.is „Þetta er nýtt form af örorku“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Skólakerfið hentar ekki öllum.  Lyfjanotkunin bendir til þess.  Þegar við erum farin að höggva tær og hæla af börnum til að geta troðið þeim í tiltekna gerð af skóm þá er vandamálið ekki bundið við börnin.

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 14.1.2017 kl. 13:59

2 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Takk fyrir að líta við, Elín. Það má yfirleitt bæta kerfi, þar með skólakerfið, en myndmálið hjá þér er ansi dramatískt!

Wilhelm Emilsson, 14.1.2017 kl. 17:15

3 identicon

Ég veit ekki hversu dramatískt það er.  Það er talað um nýtt form af örorku í greininni.  Það er soldið sérstakt að menn tali um að efla forvarnir vegna lyfja þegar fyrir liggur að börnin fá lyfin í gegnum skólakerfið til að byrja með.  Hvaða rétt hafa foreldrar eða skólayfirvöld til að setja börn á ávanabindandi lyf? Hvar er umboðsmaður barna?  Er hann önnum kafinn við að búa til reglur um snjallsímanotkun?

http://ruv.is/frett/fljotlegra-ad-redda-dopi-en-fa-pizzu-senda

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 15.1.2017 kl. 10:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband